Erlent

Allir fangarnir fundnir

Fjórir fangar sem sluppu úr fangelsi í Svíþjóð síðastliðinn miðvikudaginn eru allir fundnir. Síðasti fanginn sem náðist var Tony Olsson en hann situr í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa drepið tvo lögreglumenn og fremja bankarán. Að sögn lögreglunnar í Stokkhólmi fékk hún vísbendingar um að Olsson væri í borginni. Hann fannst skömmu seinna en þá hafði hann falið sig á háalofti í byggingu við Tegelvretens-garðinn. Olsson veitti enga mótspyrnu við handtökuna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×