Fleiri fréttir

Tveir handteknir á Selfossi

Lögreglan á Selfossi handtók tvo menn í nótt eftir að þeir höfðu brotist inn á tannlækastofu í bænum og voru þar á útleið með tölvu og talsvert af lyfjum. Fyrr um daginn höfðu mennirnir verið reknir úr Byrginu á Efri Brú vegna umgengniserfiðleika.

Sameining tekur gildi 1. ágúst

Sameining sveitarfélaganna Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupsstaðar tekur gildi 1. ágúst. Félagsmálaráðuneytið staðfesti þann 20. júlí sl. sameiningu þeirra en íbúar beggja sveitarfélaganna samþykktu sameininguna í atkvæðagreiðslu sem fram fór samhliða forsetakosningum 26. júní sl.

Fordæma árásina í Baquba

Bandaríkjamenn fordæma sjálfsmorðssprengjuárásina í Baquba í Írak í gær. Talsmaður Hvíta hússins sagði í gærkvöldi að árásin myndi ekki draga úr áætlunum Bandaríkjamanna um uppbyggingu landsins.

Dómurinn mildaður um 36 ár

Stríðsglæpadómstóllinn í Hague mildaði í dag einn harðasta dóm sem hann hefur kveðið upp um 36 ár. Fyrrverandi hershöfðingi í her Króata í Bosníu, Tihomir Blaskic, var dæmdur árið 2000 fyrir stríðsglæpi og þjóðarhreinsanir í Bosníu árið 1993.

Gíslatökum linnir ekki

Hryðjuverkahópur Abu-Musab al-Zarqawi linnir ekki látum og heldur áfram gíslatökum og hótunum. Nýjasti gíslinn er vörubílstjóri frá Sómalíu, sem rænt var í morgun, þegar hann var við vinnu sína hjá fyrirtæki frá Kuwait, sem starfar í Írak.

Aukin löggæsla um helgina

Aukin löggæsla verður um verslunarmannahelgina en þá mun ríkislögreglustjóri aðstoða lögreglustjóra landsins. Lögreglustjórar bera ábyrgð á að halda úti löggæslu, hver í sínu umdæmi. Í því felst m.a. almenn löggæsla, eftirlit með fíkniefnum og umferðarlöggæsla. Þá verður fjölmennt lögreglulið í tengslum við útisamkomur.

Allt að 270 % verðmunur

Allt að 270 prósenta verðmunur reyndist á sömu vörutegundinni á milli verslana, í verðkönnun, sem Fréttablaðið gerði á höfuðborgarsvæðinu í gær, en 46 prósenta munur var á heilli matarkörfu með fimmtán vörutegundum í.

Tuttugu Frakkar týndir á hálendinu

Flugbjörgunarsveitin á Hellu er í viðbragðstöðu eftir að hjálparbeiðni barst frá hópi Frakka, væntanlega um 20 manns. Hópurinn kallaði í talstöð á rás sem Ferðafélag Íslands notar og heyrði einn af starfsmönnum félagsins hjálparbeiðnina. Þegar starfsmaðurinn kallaði til baka og bað um staðsetningu komu engin svör.

Umferð hleypt á Reykjanesbraut

Umferð verður hleypt á tvöfalda Reykjanesbraut í dag, um tólf kílómetra langan kafla. Slysum mun fækka til muna og ferðatíminn styttast, segir Vegagerðin.

Fullkomin peningafölsun

Falsaðir danskir hundrað krónu seðlar eru nú í umferð í Kaupmannahöfn og er óttast að þeir séu prentaðir ásamt Pundum, Dollurum og Evrum, í fullkominni prentsmiðju einhvers staðar í Austur- Evrópu.

Lítið vantar uppá á hótel Búðum

Hótelstjórinn á Búðum segir óeðlilegt að gistiheimili fái rekstrarleyfi séu brunavarnir ófullnægjandi. Síðasta vetur voru settar upp eldvarnahurðir á hótelinu en eftir er að setja upp handrið á þaki þess.

Kerry heldur ræðu sína í dag

John Kerry tekur í dag formlega við útnefningu sem forsetaframbjóðandi demókrata á flokksþingi þeirra í Boston. Hann segir ræðuna sem hann heldur í tilefni dagsins vera þá mikilvægustu á ferli sínum.

Karlmenn segja NEI

Karlmenn verða að standa saman allir sem einn í að koma í veg fyrir nauðganir, segir karlahópur Femínistafélagsins, sem stendur fyrir átaki um verslunarmannahelgina gegn nauðgunum.

FÍB með viðbúnað um helgina

Líkt og undanfarna ríflega hálfa öld verður FÍB með mikinn viðbúnað á þjóðvegum landsins um verslunarmannahelgina í ár í því skyni að veita neyðarþjónustu. Hátt á annan tug þjónustufarartækja félagsins verða á vegum landsins

Sjúkum slakað aftan úr skútu

Áhöfn á stórri franskri seglskútu dó ekki ráðalaus þegar þyrla Landhelgisgæslunnar kom til að sækja slasaðan bátsverja í nótt, heldur lét hinn slasaða í gúmmíbát og slakaði svo bátnum langt aftur úr skútunni, svo engin hætta stafaði af möstrum skútunnar.

Frestað að setja út rekald

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur frestað því vegna veðurs, að setja út rekald við Presthúsatanga á Kjalarnesi til að kanna hvert líkið af Sri Ramawati hefur hugsanlega rekið.

Rauði kross Íslands í Darfur

Þrír reyndir sendifulltrúar Rauða kross Íslands eru að störfum á neyðarsvæðunum í Darfur í Súdan. Rauði kross Íslands hefur auk þess veitt nær tíu milljónir króna til hjálparstarfsins þar. Ennfremur starfar Alþjóða Rauði krossinn að því að vernda óbreytta borgara gegn brotum á alþjóðlegum mannúðarlögum, sameina fólk sem orðið hefur viðskila og tryggja réttindi fanga.

Hóta blóðbaði í Evrópu

Samtök sem sögð eru tengjast Al-Qaida hafa hótað að standa fyrir blóðbaði í Evrópu á næstunni. Í yfirlýsingu samtakanna, sem birtist á Netinu í dag eru Evrópuríki fordæmd fyrir að hafa ekki dregið herlið sín heim frá Írak og Afghanistan.

Slæmt útlit fyrir flug til Eyja

Þoka, hvassviðri og rigning eru nú í Vestmannaeyjum, en von er á fjölda þjóðhátíðargesta þangað í dag og svonefnt húkkaraball verður í kvöld. Þrátt fyrir veðrið er Herjólfur að leggja af stað frá Þorlákshöfn með 500 manns, eða fullt skip, en slæmt útlit er fyrir flug til Eyja í dag.

Fólki undir 18 ára vísað frá

Ungmennum undir 18 ára aldri verður ekki hleypt inn á tjaldsvæði Akureyrarbæjar nema í fylgd með forráðamanni um verslunarmannahelgina. Á Akureyri verður haldin fjölskylduhátíðin "Ein með öllu". Fólki undir 18 ára verður vísað frá

Aðstæður til leitar slæmar

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Rangárvallasýslu eru komnar til leitar á sunnanverðu hálendinu, í nágrenni við Laugaveginn svo kallaðan, leiðina á milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Þá er TF-SIF þyrla Landhelgisgæslunnar kominn á svæðið

Fá áfram að selja olíu

Rússneski olíurisinn Yukos fær áfram að framleiða og selja olíu þrátt fyrir fyrri kröfur dómsvalda um að öll sala á afurðum fyrirtækisins yrði stöðvuð. Dómsmálaráðuneytið rússneska sagði bannið ekki ætlað að stöðva olíuframleiðslu Yukos.

Flutti líkið í póstpoka

Hákon Eydal flutti líkið af fyrrverandi sambýliskonu sinni, Sri Rhamawati, í póstpoka úr næloni, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Þar er sagt að atvikið tengist ekki fíkniefnanotkun og að ástæðan hefði verið bæði langvarandi og skyndileg. Í tilkynningu lögreglunnar eru málavextir reifaðir í stórum dráttum.

Hakakrossar í kirkjugarði

Skemmdarvargar máluðu hakakrossa og tákn djöfladýrkenda á 32 leiði í kirkjugarði franskra gyðinga í gær. Maður sem færði blóm að leiði ættingja síns í kirkjugarðinum gerði lögreglu viðvart. Svo virðist sem skemmdarvargarnir hafi takmarkaða þekkingu á þeim málstað sem þeir predika, enda voru sumir hakakrossanna öfugir og líktust því fremur gamla einkennismerki Eimskipa en tákni um nasisma.

Ráðstefnu frestað í Írak

Ráðstefnu sem halda átti í Írak á laugardaginn hefur verið frestað til 15. ágúst að beiðni Sameinuðu þjóðanna. Forsvarsmenn ráðstefnunnar neita því að hryðjuverkin í gær hafi orðið þess valdandi að ákveðið var að fresta henni.

Fáar nauðganir verða að dómsmálum

Hvorug tilkynningin um nauðgun um síðustu verslunarmannahelgi hefur enn leitt til ákæru. Þó náðust ljósmyndir af öðru tilvikinu. Tilkynntar nauðganir um verslunarmannahelgina 2001 voru 21 en fáar ef nokkur enduðu með dómsmeðferð.

Edwards ber Kerry lofi

John Kerry tekur í dag formlega við útnefningu sem forsetaframbjóðandi demókrata á flokksþingi þeirra í Boston. Ræðan sem hann heldur í kvöld er líklega sú mikilvægasta á ferli hans.

Engin ákvörðun enn tekin

Borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans fullyrða að ákvörðun um að rífa ekki Austurbæjarbíó hafi verið tekin fyrir rúmum mánuði. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulagsnefndar, þverneitar því og segir enga ákvörðun hafa verið tekna. Hún var ósátt við þá ákvörðun forseta borgarstjórnar að nánast lýsa því yfir í fjölmiðlum í vikunni að Austurbæjarbíó yrði ekki rifið.

Allsherjarleit að 20 ferðamönnum

Búið er að bæta við björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Vestur-Skaftarfellssýslu við leitina að hópi ferðamanna sem leitað hefur verið að frá því um miðjan dag. Þá hafa björgunarsveitir frá Rangárvallasýslu verið við leit frá kl.15 í dag.

Samningur um lækkun lyfjaverðs

Heilbrigðisráðherra hefur gert samning við fulltrúa lyfjaframleiðenda innan Félags stórkaupmanna um að lækka lyfjaverð til samræmis við verð annars staðar á Norðurlöndum. Stefnt er að því að lyfjaverð hér á landi verði sambærilegt við meðalverð á Norðurlöndunum innan tveggja ára.

Fyrsta hraðbraut Íslands

Tvíbreið Reykjanesbraut frá mörkum Hafnarfjarðar og nánast inn að Vogum á Vatnsleysuströnd var opnuð fyrir umferð í gær. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, hleypti umferð á nýja vegarkaflann sem er 12,1 kílómetra langur.

GSM-kerfi Símans eykur öryggi

GSM-sendar Símans hafa gjörbylt starfsaðferðum Neyðarlínunnar 112. Síðustu tvö árin hafa sendarnir meðal annars verið nýttir til að staðsetja vettvang slysa. Það hefur komið í veg fyrir að björgunarsveitir séu sendar í leiðangra á fölskum forsendum. Ísland er fyrst ríkja til að nýta þessa tækni.

Ekki sett út rekald á morgun

Ekki verður sett út rekald á morgun í Hofsvík á Kjalarnesi vegna leitarinnar að Sri Rhamawati. Í tilkynningu frá slysavarnarfélaginu Landsbjörgu segir að ákveðið hafi verið að fresta því fram á sunnudag eða mánudag en þá verði sjávarföll svipuð og þegar líki Sri var varpað í sjó fram. Þá geri veðurspá einnig ráð fyrir betra veðri á þeim tíma.

NATO hunsar Frakka

Allt bendir til þess að NATO muni þjálfa íraska hermenn innan landamæra Írak, þrátt fyrir að Frakkar hafi lagst gegn því. Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, vill fá úr málinu skorið ekki síðar en í vikulok.

Skæruliðar segja fangelsun ótæka

Salvatore Manusco, leiðtogi kólumbískra skæruliða hélt ræðu á kólumbíska þinginu í gær og sagði það ólíðandi að nokkur manna sinna þyrfti að sæta fangavist.

FÍB með mikinn viðbúnað

Félag íslenskra bifreiðaeigenda verður með mikinn viðbúnað á þjóðvegum landsins um verslunarmannahelgina í ár.

Ráðstefnu í Írak frestað

Landsráðstefnu Íraka, sem átti að hefjast á morgun, hefur verið frestað um tvær vikur eftir að bílsprengja varð 70 manns að aldurtila á miðvikudag. Ráðstefnan er talinn mikilvægt skref í þróun Íraks í lýðræðisátt.

Ódæðisverk í Kashmír

Þrítug indversk húsmóðir var hálshöggvin í indverska hluta Kasmír héraðs í gær. Morðið hefur vakið mikinn óhug í héraðinu en fyrr í vikunni var karlmaður afhöfðaður ásamt tveimur börnum sínum.

Búlgarskir hælisleitendur

Búlgörsk hjón með tvö börn komu með Norrænu í gær og sóttu um hæli á Íslandi. Hjónin gáfu sig fram við lögreglu um hádegisbil og var skýrsla tekin af þeim í kjölfarið.

SÞ ályktar um Súdan

Vígamenn hlekkja óbreytta borgara saman og kveikja í þeim í Darfur héraði í Súdan, en það eru engar blikur á lofti sem benda til þess að ógnaröldin sé á undanhaldi.

Dómstóll kannar stríðsglæpi

Alþjóðasakadómstóllinn í Haag hefur hafið rannsókn á meintum voðaverkum í norðurhluta Úganda, þar sem ríkistjórnin hefur barist við uppreisnarmenn í átján ár. Þetta er önnur formleg rannsókn Alþjóðasakadómstólsins, en í næsta mánuði hefst rannsókn á meintum stríðsglæpum í Kongó.

Páfagarður kannar barnaklám

Vatíkanið hefur meinað austurískum biskup að tjá sig opinberlega um barnaklámsmál sem kom upp í kaþólskum prestaskóla í umdæmi hans fyrir skemmstu.

Aldrei í stríð af hentisemi

John Kerry tók við útnefningu demókrata í gær sem frambjóðandi þeirra í forsetakosningunum í nóvember næstkomandi.

Handtekin fyrir súkkilaðiát

Kona var handtekin af lögreglu og haldið í gæslu í þrjár klukkustundir fyrir að borða súkkulaðistöng á neðanjarðarlestarstöð í Washington þar sem neysla matvæla er bönnuð.

Sauma þurfti 56 spor í hálsinn

Ásgeir Elíasson leigubílstjóri slapp ótrúlega vel eftir að einn manna sem hann ók skar hann á háls þegar kom að greiðslu fargjaldsins. Skurðurinn á hálsi Ásgeirs er sextán sentímetra langur og sauma þurfti 56 spor. </font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir