Hæstu menn landsbyggðar 30. júlí 2004 00:01
Akureyringar eru atkvæðamiklir þegar rýnt er í lista yfir þá sem greiða hæstu gjöldin á landsbyggðinni. Sá sem greiðir mest kemur þó úr Vestmannaeyjum. Mikill munur er á efstu mönnum á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Gjaldahæsti maður landsbyggðarinnar er Gunnar Jónsson úr Vestmannaeyjum. Hann þarf að greiða rúmar 42 milljónir í opinber gjöld. Þá kemur Páll Stefánsson í Snæfellsbæ með rúmar 33 milljónir. Næstir á landsbyggðarlistanum eru tveir skipstjórar og bræður frá Höfn; Örn Þór Þorbjörnsson og Ágúst Hilmar Þorbjörnsson með rúma 31 milljón hvor. Athygli vekur að níu af 10 hæstu gjaldendum á Austurlandi koma úr tveimur sveitarfélögum; Höfn og Fjarðabyggð. Næst koma tveir Vestmannaeyingar; Guðjón Ragnar Rögnvaldsson og Leifur Ársælsson, báðir með tæpar 30 milljónir króna. Nokkurt bil er í næsta mann sem kemur frá Vesturlandi, Ólafur Ólafsson. Þá koma þrír Sunnlendingar; Guðmundur A Birgisson, Gunnar A. Jóhannsson og Guðmundur Jónsson. Þeir eru allir með hálfan annan tug milljóna í gjöld. Og þá kemur að þætti Akureyringa sem raða sér í næstu fimm sætin; allir með 13 til 14 milljónir. Það eru þeir bræður Birgir, Vilhelm og Skúli Ágústssynir, oft kallaðir Kennedýbræður. Þar inn á milli troða sér útgerðarmaðurinn Þorsteinn Már Baldvinsson og Jóhannes úr Bónus er þarna líka, ekki þó hálfdrættingur á við son sinn eins og við sáum áðan. Enn höfum við engan séð frá Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Hæstu menn þar teljast ekki háir miðað við aðra landsfjórðunga. Á Vestfjörðum er Leif Halldórsson, útgerðarmaður á Patreksfirði hæstur með tæpar 10 milljónir og á Norðurlandi vestra er Gísli Ólafsson, læknir á Blönduósi á toppnum með rúmar 7 milljónir króna.
Fréttir Innlent Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Sjá meira