Staða Kerrys sterk 30. júlí 2004 00:01
Baráttan um forsetaembættið í Bandaríkjunum snýst í auknum mæli um að ná fótfestu í fjórum til fimm ríkjum sem talin eu ráða úrslitum um niðurstöðu kosninganna. John Kerry hefur nú tekið formlega við útnefningu demókrata á flokksþingi í Boston en á sama tíma og Kerry baðar sig í sviðsljósinu þar hefur Bush forseti gert víðreist um ríkin sem baráttan stendur um. Staða Kerry er talin vera óvenjusterk miðað við að hann er að skora sitjandi forseta á hólm. Sérfræðingar telja að Kerry eigi stuðning 168 kjörmanna nokkurn veginn vísan en Bush 190. 270 atkvæði þarf til að sigra í kosningunum. Baráttan stendur hins vegar um nokkur stór ríki. Ohio skilar tuttugu kjörmönnum, Pennsylvania 21 og Flórída hefur 27 kjörmenn. Staðan í öllum þessum ríkjum er jöfn; sérstaklega í Ohio og Pennsylvania. Í ræðu sinni við útnefninguna lagði Kerry áherslu á að Bandaríkin þyrftu að endurheimta virðingu í alþjóðasamfélaginu. Harðasta gagnrýni Kerry á Bush í ræðunni var varðandi gjöreyðingarvopn Íraka og stríðsreksturinn þar. Jafnframt lagði hann áherslu á fjölskyldugildi og talaði mikið um foreldra sína. Kosningasérfræðingar Demókrataflokksins vildu varpa upp mynd af Kerry sem ákveðnum og heiðvirðum manni sem hefði sannfæringu og viljastyrk til að veita Bandaríkjamönnum forystu í stríðinu á hendur hryðjuverkum. Kerry lagði einnig áherslu á efnahagsmál og sérstaklega stöðu þeirra verkamanna sem eiga í alþjóðlegri samkeppni. Demókratar hafa gert sér mat úr óánægju almennings með að bandarísk fyrirtæki flytji í auknum mæli starfsemi sína til útlanda. Demókratar vilja nýta sér þessa óánægju en jafnframt þurfa þeir að taka tillit til þess að stór hópur kjósenda þeirra eru fríverslunarsinnar, enda var fríverslun einn af hornsteinum velgengni Bill Clinton. Búist er við tímabundinni uppsveiflu í fylgi Kerry í kjölfar flokksþingsins en reynslan segir að slíkt hjaðni þegar frá líður auk þess sem repúblikanar geta átt von á uppsveiflu í sínu gengi þegar þeirra flokksþing verður haldið í New York um næstu mánaðamót.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Sjá meira