Innlent

Hagnaður Bakkavarar 570 milljónir

Hagnaður Bakkavarar nam tæplega 570 milljónum króna fyrir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins, en rúmlega 412 milljónum króna eftir skatta. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri fyrirtækisins sem birt var í dag. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaður 437 milljónum, að frádregnum söluhagnaði vegna sölu á sjávarútvegshluta félagsins. Í fréttatilkynningu frá Bakkavör segir að rekstur félagsins hafi verið í samræmi við væntingar stjórnenda þess.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×