Upp­gjör: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið

Árni Jóhannsson skrifar
KR-ingar fagna einu af þremur mörkum sinum í fyrri hálfleiknum.
KR-ingar fagna einu af þremur mörkum sinum í fyrri hálfleiknum. Vísir/Anton

KR-ingar unnu 5-2 sigur á Fram í Úlfarsárdalnum í sjö marka lokaleik átjándu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld og náðu með því öðru sætinu af Framliðinu.

KR skoraði tvö mörk á fyrstu sex mínútum leiksins og komst síðan í 3-0 en Fram minnkaði muninn á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks og kom muninum niður í eitt mark í þeim síðari.

KR-ingar gerðu þá út um leikinn með tveimur mörkum á stuttum tíma og eru nú bara sex stigum á eftir toppliði Víkings sem hefur verið að tapa stigum í síðustu leikjum.

Stuðningsmenn KR sungu líka "Víkingar stressaðir" undir lok leiksins þegar KR-ingar voru búnir að gera út um leikinn.

Eiður Gauti Sæbjörnsson skoraði tvö mörk fyrir KR en hin skoruðu Arnór Ingvi Traustason, Ástbjörn Þórðarson og Galdur Guðmundsson. Kennie Knak Chopart skoraði bæði mörk Fram.

Frábær byrjun hjá KR

Báðir þjálfara töluðu um það í viðtali fyrir leik að þeir vildu sjá orku hjá sínum mönnum. Óskar Hrafn fékk ósk sína uppfyllta en Helgi Sig. alls ekki. KR komst yfir með marki Arnórs Ingva Traustasonar strax á 4. mínútu leiksins þegar hann fékk boltann í D boganum frá Orra Hrafni Kjartanssyni og lagði Arnór boltann framhjá Viktori með föstu skoti. 

KR bætti svo við marki tveimur mínútum seinna þegar Eiður Gauti náði að böðla boltanum yfir línuna eftir að Galdur Guðmundsson lét Viktor í marki Fram verja frá sér. Boltinn fór í langan boga og stefndi inn en Eiður sá til þess að boltinn komst inn en vildi eigna Galdri markið.

Eftir þetta róaðist leikurinn og Fram náði að ógna KR úr hornspyrnum. KR skoraði þó þriðja markið á 29. mínútu eftir sendingu frá Arnóri Ingva á Eið Gauta sem sneri boltann framhjá Viktori í markinu frá vítapunktinum. 

En eins og oft er með KR þá ná þeir ekki að halda hreinu og leikurinn hleypist oft upp í loft. Kennie Chopart skallaði þá hornspyrnu í netið með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks og minnkaði muninn í 1-3.

Fram kom talsvert sterkara út í seinni hálfleikinn og náðu að minnka muninn og gera leikinn spennandi á 61. mínútu. Aftur var Kennie Chopart á ferðinni og aftur úr horni frá Haraldi Einari Ásgrímssyni.

KR náði þó að lifa af og eftir að Halldór Snær Georgsson varði dauðafæri frá Vuk Dimitrijevic þá skoruðu KR-ingar fjórða mark sitt og þar með náðu þeir að tæma Fram blöðruna. Þeir gengu á lagið og Galdur Guðmundsson skoraði fimmta markið sem geirnegldi úrslitin.

Frábær fótboltaleikur sem endaði 2-5 og náðu í annað sætið í deildinni. Þeir ná að minnka muninn sem Víkingur hefur á toppnum í sex stig og það er spenna á toppi Bestu deildar karla.

Atvik leiksins

Það er markvarsla Halldórs Snæs Georgssonar þegar Bjarni Linnet Runólfsson átti skot sem Halldór varði en þá var vesenið ekki búið því Vuk Dimitrijevic var mættur meter frá marki. Halldór náði að slæma hendinni í skotið frá Vuk og náði að bjarga því að Fram næði að jafna metin 3-3. KR gekk svo frá leiknum.

Stjörnur og skúrkar

Eiður Gauti Snæbjörnsson skoraði tvö mörk í dag og gaf eina stoðsendingu og er maður leiksins. Það voru hinsvegar margir sem voru að leggja í púkkið hjá KR eins og Galdur Guðmundsson.

Hjá Fram þá verða þeir að taka skúrka titilinn því þessi byrjun var agaleg og varð til þess að þeir töpuðu leiknum.

Umgjörð og stemmning

Frábær umgjörð hjá Fram og 1908 manns sem komu í stúkuna. Létu vel í sér heyra. Frábær fótboltaleikur fékk frábæra stemmningu sem hann átti skilið.

Dómarinn

Helgi Mikael Jónasson sá um dómgæsluna. Mér fannst hann leyfa mikið og flæðið var gott. Hann hélt þeirri línu sem er vel sem gerði það að verkum að leikurinn var í góðum takti. Auðvitað pirraði það stuðningsmenn en ég held að þetta hafi verið rétt afgreitt hjá honum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira