Fótbolti

Kok­hraustur eftir neyðarfund

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gianni Infantino, forseti FIFA, gefur sig ekki og ætlar ekki að segja af sér.
Gianni Infantino, forseti FIFA, gefur sig ekki og ætlar ekki að segja af sér. AP/Manu Fernandez

Gianni Infantino, forseti FIFA, neitar að segja af sér. Eftir neyðarfund í kvöld kom hann bæði með afsökunarbeiðni til FIFA-ráðsins og hótun í garð gagnrýnenda sambandsins.

Infantino, sem sætir miklum þrýstingi, hafði kallað nokkra lykilstarfsmenn á fund í skrifstofum FIFA í Salé, úthverfi Rabat í Marokkó. 

Seint í kvöld sendi FIFA frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að leiðtogahópur FIFA hafi lýst yfir fullum stuðningi við Infantino sem kjörinn leiðtoga aðildarsambandanna 211.

Infantino lýsti fyrir sitt leyti yfir stuðningi við framkvæmdastjórann og stjórnsýsluna.

Infantino mun senda bréf til ráðsmanna FIFA þar sem hann biðst afsökunar á mistökum sem gerð voru í misheppnaðri áætlun um að selja hlut í mótum sambandsins til utanaðkomandi fjárfesta.

Jafnframt segir forsetinn að FIFA muni ekki lengur umbera það sem hann lýsir sem „árásum á heilindi, stjórnarhætti og ferla sambandsins“ og muni grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til að vernda gott nafn sitt og orðspor.

Eftir sjö klukkustunda langan fundinn sást til hans í stúkunni á leik í Afríkukeppni kvenna, þar sem hann sat brosandi við hlið Mattias Grafström, framkvæmdastjóra FIFA, sem hafði gagnrýnt hann daginn áður.


Tengdar fréttir

Figo hraunar yfir Infantino

Knattspyrnugoðsögnin Luis Figo hefur greint frá því að Gianni Infantino, forseti FIFA, „verði að fara“. Þrýstingur eykst á forseta FIFA í skugga neyðarfundar sem hann hefur kallað til í dag.

Infantino boðar neyðarfund

Gianni Infantino forseti FIFA hefur kallað alla æðstu ráðamenn sambandsins á neyðarfund í Marokkó á morgun.

Sakar Infantino um fjárkúgun

Ali Bin Al Hussein, prins og forseti knattspyrnusambands Jórdaníu, tekur Gianni Infantino, forseta FIFA, fyrir í langri ræðu sem hann ritar opinberlega. Hann segir FIFA eiga ógreiddar skuldir og sakar Infantino um fjárkúgun fyrir stuðning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×