Valur - Fram 0-0 | Bragð­laus leikur á Hlíðar­enda

Katla Margrét Jónsdóttir skrifar
Valur og Fram gerðu markalaust jafntefli.
Valur og Fram gerðu markalaust jafntefli. vísir / diego

Leikur Vals og Fram endaði í markalausu jafntefli í 5. umferð Bestu deild kvenna á Hlíðarenda í kvöld. Bæði liðin bæta því við sig einu stigi eftir úrslit kvöldsins.

Valskonur byrjuðu fyrri hálfleikinn fremur vel og fengu sína fyrstu marktilraun á aðeins annarri mínútu. Við byrjun fyrri hálfleiks var útlitið svo að Valskonur myndu hafa yfirhöndina í leik þessum en það var þó ekki raunin.

Valur - Fram VÍSIR / DIEGO

Frammarar hófu svo að sækja í sig veðrið á 10. mínútu og keyrðu upp sóknarleik sinn. Þar af voru Brooklyn Paige Enst og Una Rós Unnarsdóttir sérstaklega ógnandi.

Fyrri hálfleikur var jafn og tíðindalítill framan af. Liðin skiptust á að hafa yfirhöndina og bæði lið fengu færi sem þeim tókst ekki að nýta.

Valur - FramVÍSIR / DIEGO

Seinni hálfleikur byrjaði með svipuðum hætti og sá fyrri. Liðin voru álíka mikið með boltann og skiptust á árangurslitlum marktilraunum.

Valur - FramVÍSIR / DIEGO

Þegar leið á seinni hálfleik færðist meiri kraftur í leikinn. Frammarar sköpuðu sér tvö álitleg færi og máttu Valsarar telja sig heppna að færin hafi ekki leitt til marka. 

Það var marktilraun Taylor Marie Hamlett á 59. mínútu þar sem að hún mætti markverði Vals henni Tinnu Brá Magnúsdóttur alein. Taylor endaði svo að reyna skjóta boltanum á milli fóta markvarðarins sem reyndist ekki ganga. 

Hin marktilraunin var á 68. mínútu þar sem Freyja Dís Hreinsdóttir reyndi að hitta boltanum inn eftir fyrirgjöf frá Brooklyn Paige Enst.

VÍSIR / DIEGO

Eftir þessar tvær marktilraunir skiptu Valsarar um gír og hófu að sækja meira á markið.

Undir lok leiksins breyttist takturinn í leiknum. Leikurinn varð harðari, færin fleiri og talsverður hiti færðist í bæði leikmenn og stuðningsmenn, sem létu óspart í sér heyra.

En allt kom fyrir ekki og leikurinn endaði í markalausu jafntefli.

Markmennirnir héldu mörkum sínum hreinum.vísir / diego

Atvik leiksins

Atvik leiksins voru nánast engin en marktilraunir Frammara á 59. og 68. mínútu stóðu upp úr í þessum tíðindalitla leik.

Stjörnur og skúrkar

Lítið var um stjörnur í þessum leik. Ísabella Sara Tryggvadóttir úr liði Vals gerði mikið fyrir liðið sitt og keyrði upp sóknarleikinn þeirra. Una Rós Unnarsdóttir gerði einnig mikið fyrir liði sitt Fram.

Stemning og umgjörð

Stemningin hér á Hlíðarenda var virkilega góð. Bæði lið voru með sinn hóp af stuðningsfólki sem hvöttu lið sín til dáða. Það var blíðskaparveður sem skemmdi alls ekki fyrir.

Dómarar

Dómarar voru Brynjar Þór Elvarsson, Tomasz Piotr Zietal og Eydís Ragna Einarsdóttir sem stóðu sig heilt yfir bara nokkuð vel.

Viðtöl

Anton Ingi Rúnarsson: Það er bara að ná að klára þetta.

VÍSIR / DIEGO

„Það voru engin mörk skoruð og það einkenndi leikinn. Mér fannst við samt vera sterkari aðilinn á vellinu. Færanýtingin mætti fara betur, það er eins og í hinum fjórum leikjunum. Það er ekki að detta með okkur fyrir framan markið, það er vont en við héldum hreinu í dag, það er gott,” sagði Anton Ingi, þjálfari Fram aðspurður út í leikinn.

„Ég vil sjá sömu baráttu og við sýndum hér í dag og ég vil sjá betri færa nýtingu og halda áfram að halda markinu hreinu. Ég vil mæta í leikinn á mánudag á móti Þór til þess að vinna og klára hann almennilega,” sagði Anton Ingi Rúnarsson aðspurður út í hvað hann vill sjá frá Fram í komandi leikjum.

„Ég er ánægður að mörgu leyti. Það er stígandi í þessu og eins og ég segi það vantar að detta með okkur markið en það kemur á endanum. Við erum að komast í færin það er bara að ná að klára þetta, það er lykillinn í þessu,” sagði Anton Ingi Rúnarsson eftir leik.

Matthías Guðmundsson: Leikurinn var naglbítur.

„Mikil barátta. Mér fannst leikurinn naglbítur, eins og allir leikirnir eru búnir að vera hingað til. Þetta hefur verið mjög jafnt. Við höfum verið inn í öllum leikjunum en mér fannst þetta naglbítur og bæði liðin að bíta vel frá sér,” sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals aðspurður út í einkenni leiksins.

„Líklega ákvarðanataka á síðasta þriðjungi, að koma okkur í betri stöður, hafa aðeins meiri ró á boltann og velja réttu sendingarnar þegar það átti við,” sagði Matthías spurður út í hvað hefði mátt fara betur.

„Halda áfram að byggja okkar. Þetta er ungt lið. Mér finnst við vera að læra á hverjum leik, hver og einn einasti leikur er mjög spennandi. Við höfum átt séns á að vinna leiki og andstæðingurinn hefur átt séns á að vinna alla leiki hingað til, sagði Matthías spurður út í hvað hann vill sjá í komandi leikjum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira