Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. apríl 2026 16:01 Einar Geir er oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði. Aðsend Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Einar Geir Þorsteinsson er oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði. Ég heiti Einar Geir Þorsteinsson og er oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði. Ég er 36 ára faðir þriggja stráka, lögmaður og íbúi í norðurbæ Hafnarfjarðar, en hef einnig búið í suðurbæ Hafnarfjarðar og Vallarhverfinu. Strákarnir stunda íþróttir í FH og SH og sækja leik- og grunnskóla hér í bænum. Ég þekki af eigin raun þau vandamál sem slæmar ákvarðanir sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í samgöngumálum síðustu ára hefur skapað fyrir íbúa, og tel ég okkur geta gert betur án þess að ausa peningum í verkefni sem eru ekki til þess fallin að leysa raunveruleg vandamál í samgöngum fyrir Hafnfirðinga. Ég hef m.a. unnið á lögmannsstofu, við skipti á þrotabúi WOW air og setið við samningaborðið í tveimur kjarasamningsviðræðum fyrir Reykjavíkurborg. Miðflokkurinn í Hafnarfirði ætlar að fara í þau verkefni sem aðrir flokkar hafa látið sitja á hakanum. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Þetta er erfið spurning, enda höfum við komið okkur vel fyrir í Hafnarfirðinum. Ef við neyddumst af einhverjum ástæðum til að yfirgefa Hafnarfjörðinn, ætli við myndum ekki finna einhvern annan stað á höfuðborgarsvæðinu.“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Það eru nokkrar sem koma til greina. Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn er líklega ein af fáum bókum sem ég hef lesið oftar en einu sinni, enda frábær bók. Annars las ég síðast ævisögu Gunnars Birgissonar, fyrrum bæjarstjóra Kópavogs, sem var góð lesning enda skeleggur maður.“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Þau verkefni sem skila litlum eða engum mælanlegum ávinningi fyrir íbúa Hafnarfjarðar. Þar mætti byrja. Við greiðum líka of mikið inn í Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins miðað við þann ávinning sem Hafnarfjörður fær.“ Einar, Kristín og strákarnir þrír á TenerifeAðsend Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Sá hópur sem hefur setið eftir síðustu ár eru barnafjölskyldur. Ég myndi setja þennan pening í að efla og styðja við barnafjölskyldur, t.d. með 250.000 kr. heimgreiðslum eins og við höfum boðað. Þá er kominn tími á endurbætur á íþróttamannvirkjum Hafnarfjarðarbæjar. Lengjum opnunartíma sundlauga í leiðinni.“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Eigum við ekki bara að segja að hún skrifuð síðar og muni bera heitið „Þegar Miðflokkurinn bjargaði Hafnarfirði“?“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Það fer algjörlega eftir aðstæðum. Í dag fara samskipti meira og meira fram á samfélagsmiðlum, en í aðdraganda þessara sveitarstjórnarkosninga hafa samskiptin færst mun meira yfir í símtöl.“ Á fundi Miðflokksins.Aðsend Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Þegar ég hef kallað eftir sanngjarnari dreifingu á móttöku hælisleitenda hafa jafnvel Miðflokksmenn úr öðrum sveitarfélögum gagnrýnt mig. En ég stend við það, Hafnarfjörður ber of mikla byrði miðað við nágrannasveitarfélög, og ég mun halda áfram að krefjast þess að ríkið dreifi þessum kostnaði og ábyrgð betur.“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Gervigreind.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Ég myndi krefjast endurskoðunar á Samgöngusáttmálanum, allir í bæjarstjórn styðja Borgarlínuna, svo þetta yrði umdeilt. En við teljum betri leiðir til að bæta umferðarflæðið. Ég myndi líka krefjast sanngjarnari dreifingar á móttöku hælisleitenda milli sveitarfélaga, þessi þróun gengur ekki upp fyrir Hafnarfjörð til lengdar.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Til að fá upplýsingar um eldunartíma á kjöti sem ég var að grilla.“ Á göngu um HafnarfjörðinnAðsend Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Við getum unnið með öllum flokkum sem eru tilbúnir að fara með okkur í þau verkefni sem við teljum nauðsynleg fyrir Hafnarfjörð. Við munum ekki gefa afslátt af okkar stefnumálum bara til þess að mynda meirihluta.“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Fyrsta sem kemur upp í hugann er að hafa ekki nýtt tækifærið og farið í nám erlendis þegar það stóð í boði þegar ég var í laganámi.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Hafnarfjörður er með þennan landsbyggðaranda þrátt fyrir fjölmenni. Þá hefur uppbygging miðbæjar Hafnarfjarðar tekist einkar vel og fólk kemur í Hafnarfjörðinn til að heimsækja Jólaþorpið, Hjarta Hafnarfjarðar eða þá frábæru staði sem eru í miðbænum, og ég verð sérstaklega að nefna Krydd, Betri stofuna, Barbara og Sydhavn.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Í morgun fékk ég mér Kefir, en langoftast borða ég hreint skyr blandað við hafra.“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Skortur á forgangsröðun og ábyrgð. Fjármagni er varið í tilraunaverkefni á meðan grunnþjónusta situr á hakanum. Ákvarðanir eru teknar of langt frá íbúum, án gagnsæis og mælanlegra markmiða. Kerfið bregst seint við vandamálum sem snerta daglegt líf fólks, sérstaklega í fjölskyldu- og samgöngumálum.“ Sumarfrí með fjölskyldunni og tengdaforeldrumAðsend Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Setja grunnþjónustu í forgang og ná mælanlegum árangri í þeim efnum. Styðja foreldra betur, hraða uppbyggingu húsnæðis, bæta samgöngur án þess að þrengja að fjölskyldubílnum, auka gagnsæi í rekstri og draga úr óþarfa útgjöldum.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Highwayman með The Highwaymen, svo er Þarfasti þjónninn með Hilmir og humlunum vinsælt þessa dagana.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Forgangsröðun hefur ekki verið nægilega góð, fjármunum beint í kostnaðarsöm verkefni á meðan grunnþjónusta situr eftir. Uppbygging húsnæðis of hæg og þétting byggðar verið of mikil. Þá hafa ákvarðanir um samgöngumál verið afar illa ígrundaðar. Í móttöku hælisleitenda hefur ríkt stjórnleysi, kostnaður verið óljós og skortur á samráði við íbúa.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Ætli það sé ekki Einar Geir yngri, en afi minn og alnafni var þá kallaður Einar Geir eldri.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Við gefum ekki loforð sem við getum ekki staðið við. Við munum ekki gefa neinn afslátt af kröfum okkar um endurskoðun Samgöngusáttmálans, afnámi vaxtamarka höfuðborgarsvæðisins og skynsemi í móttöku hælisleitenda. Kjósendur geta treyst því að okkar stefnumál eru ekki bara orð á blaði.“
Oddvitaáskorunin Miðflokkurinn Hafnarfjörður Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Lífið Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Lífið Höguðu sér vel á árshátíð Haga Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Lífið Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Lífið Fleiri fréttir Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Sjá meira