Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upp­lifði sögu­legt kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Albert Guðmundsson fagnar hér marki sínu í kvöld en það var ekki nóg fyrir Fiorentina.
Albert Guðmundsson fagnar hér marki sínu í kvöld en það var ekki nóg fyrir Fiorentina. Getty/Tullio Puglia

Crystal Palace er komið í undanúrslit í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir að hafa slegið Fiorentina út úr Sambandsdeildinni í kvöld.

Fiorentina vann reyndar leikinn 2-1 en það var ekki nóg því Palace fór áfram þökk sé 3-0 sigri í fyrri leiknum í London.

Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Fiorentina og jafnaði metin á 30. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Palace-menn höfðu gert verkefni heimamanna enn erfiðara þegar Ismaila Sarr kom þeim í 1-0 á 17. mínútu með skalla eftir sendingu Daniel Munoz.

Cher Ndour kom svo Fiorentina í 2-1 á 53. mínútu en þá þurfti liðið tvö mörk í viðbót.

Þau komu ekki og Crystal Palace vann 4-2 samanlagt.

Palace mætir úkraínska félaginu Shakhtar Donetsk í undanúrslitunum en Úkraínumennirnir unnu AZ Alkmaar frá Hollandi 5-2 samanlagt eftir 2-2 jafntefli í seinni leiknum í Hollandi.

Í hinum undanúrslitaleiknum mætast síðan Rayo Vallecano frá Spáni og Strasbourg frá Frakklandi.

Vallecano tapaði reyndar 3-1 á móti AEK Aþenu í kvöld en vann 4-3 samanlagt.

Strasbourg tapaði 2-0 í fyrri leiknum á móti þýska liðinu Mainz en vann 4-0 stórsigur í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira