Bayern hafði betur í skemmtilegum leik Valur Páll Eiríksson skrifar 7. apríl 2026 20:55 Luis Díaz braut ísinn í kvöld. Angel Martinez/Getty Images Bayern Munchen vann 2-1 sigur á Real Madrid í stórskemmtilegum fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á Santiago Bernabéu í Madríd í kvöld. Búist var við hörkuleik milli stórliðanna tveggja í spænsku höfuðborginni í kvöld enda iðulega fjör þegar þau eigast við. Engin lið hafa eins oft ást við í Meistaradeild Evrópu og fjörið var engu síðra en oft áður. Mörkin létu á sér standa framan af en Bæjarar náðu góðum spilkafla sem lauk með sendingu Serge Gnabry inn fyrir á Luis Díaz og sá kólumbíski afgreiddi boltann snyrtilega í netið seint í fyrri hálfleik. Staðan 1-0 fyrir gestina í hléi. Minna en mínúta var liðin af síðari hálfleik þegar enski stormsenterinn Harry Kane tvöfaldaði forystuna og Þjóðverjarnir í ljómandi fínum málum. Real svaraði og fékk sín færi í kjölfarið. Manuel Neuer þurfti oftar en einu sinni að taka á honum stóra sínum til að koma í veg fyrir mörk frá bæði Vinicius Junior og Kylian Mbappé sem fengu sín færi. Neuer tókst þó ekki að koma í veg fyrir mark Mbappé stundarfjórðungi fyrir leikslok. Frakkinn potaði boltanum inn, með viðkomu í þýska markverðinum, frá markteig eftir frábæra fyrirgjöf Trent Alexander-Arnold frá hægri. Leikurinn var fram og til baka eftir mark franska framherjans og bæði lið hefðu getað bætt við mörkum en 2-1 úrslit leiksins gestunum frá Bæjaralandi í vil. Bayern verður því með 2-1 forystu þegar flautað verður til leiks í Munchen í næstu viku. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Real Madrid CF Spænski boltinn Þýski boltinn