Lögregla eltist við afbrotamenn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. janúar 2026 06:34 Að minnsta kosti átta voru stöðvaðir við hraðakstur í gærkvöldi og nótt. vísir/Vilhelm Lögregla eltist við tvo einstaklinga í nótt í tveimur aðskildum atvikum. Einn sem grunaður er um sölu og dreifingu fíkniefna og peningaþvætti reyndi að hlaupa undan lögreglu en hafði ekki erindi sem erfiði. Var hann yfirbugaður og handtekinn en hann er einnig grunaður um fjölda brota gegn útlendingalögum, til að mynda að framvísa ekki lögmætum skilríkjum og ógna allsherjarreglu og almannahagsmunum. Í hinu tilvikinu var um að ræða mann sem var að valda eignaspjöllum á bifreiðum. Þegar lögreglumenn bar að garði reyndi hann að kasta stóru grjóti í lögreglubifreiðina og hljóp síðan á brott. Hann var hins vegar eltur uppi og handtekinn grunaður um eignaspjöll, brot á lögreglusamþykkt og að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Var hann ekki í skýrsluhæfu ástandi þegar hann náðist, segir í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar. Einn var handtekinn til viðbótar og vistaður í fangageymslu í þágu almannafriðar og allsherjarreglu, segir lögregla, en sá hafði áður fengið tækifæri til að bæta ráð sitt. Þá var einn handtekinn grunaður um fjölda innbrota. Nokkrir voru stöðvaðir í umferðinni, flestir vegna hraðaksturs. Meðal þeirra var einn sem var handtekinn grunaður um að hafa ekið bifreið á 134 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst, undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti. Þá reyndi hann að framvísa skilríkjum annars manns þegar lögregla stöðvaði hann.
Í hinu tilvikinu var um að ræða mann sem var að valda eignaspjöllum á bifreiðum. Þegar lögreglumenn bar að garði reyndi hann að kasta stóru grjóti í lögreglubifreiðina og hljóp síðan á brott. Hann var hins vegar eltur uppi og handtekinn grunaður um eignaspjöll, brot á lögreglusamþykkt og að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Var hann ekki í skýrsluhæfu ástandi þegar hann náðist, segir í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar. Einn var handtekinn til viðbótar og vistaður í fangageymslu í þágu almannafriðar og allsherjarreglu, segir lögregla, en sá hafði áður fengið tækifæri til að bæta ráð sitt. Þá var einn handtekinn grunaður um fjölda innbrota. Nokkrir voru stöðvaðir í umferðinni, flestir vegna hraðaksturs. Meðal þeirra var einn sem var handtekinn grunaður um að hafa ekið bifreið á 134 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst, undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti. Þá reyndi hann að framvísa skilríkjum annars manns þegar lögregla stöðvaði hann. Veistu meira um málin? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur skilaboð á ritstjorn@visir.is.
Veistu meira um málin? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur skilaboð á ritstjorn@visir.is.
Lögreglumál Mest lesið Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Veður Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Erlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent „Blint í stórhríð á Vestfjörðum“ Veður Fleiri fréttir Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Sjá meira