Leik lokið: Pólland 3 - 2 Danmörk | Bæði lið í leit að fyrstu stigunum Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. júlí 2025 18:31 Germany v Denmark - UEFA Women´s EURO 2025 Group C Basel, Switzerland - July 8: Pernille Harder of Denmark gestures during the UEFA Women´s EURO 2025 Group C match between Germany and Denmark at St. Jakob-Park on July 8, 2025 in Basel, Switzerland. (Photo by Harry Langer/DeFodi Images/DeFodi via Getty Images) Pólland vann í kvöld sinn fyrsta sigur á EM kvenna í fótbolta þegar þær mættu Dönum. Þær komast ekki upp úr riðlinum en það var ljóst fyrir leik. Pólska liðið byrjaði gríðarlega sterkt og voru komnar yfir strax á 13. mínútu þegar Natalia Padilla skoraði. Aðeins sjö mínútum síðar höfðu þær bætt við öðru marki, en Ewa Pajor leikmaður Barcelona skoraði það mark. Danir minnkuðu muninn á 60. mínútu með skrautlegu marki. Janni Thomsen á fast skot á markið fyrir utan teig, beint á Kinga Szemik markvörð Pólverja. Kinga reynir að slá boltann frá en missir boltann aftur fyrir sig og í markið. Þær héldu að þær hefðu jafnað leikinn á 70. mínútu þegar Nadia Nadim skoraði eftir frábært samspil. Myndbands dómgæslan tók hins vegar markið af vegna rangstöðu. Í staðinn var það Pólland sem komst tveimur mörkum yfir á 76. mínútu þegar Martyna Wiankowska skoraði. Danir löguðu aðeins stöðuna átta mínútum síðar þegar Signe Bruun skoraði, en það reyndist ekki nóg fyrir Danina. EM 2025 í Sviss