Everton gerði sér lítið fyrir og vann 1-0 sigur á toppliði Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fyrsti leikur Everton undir stjórn knattspyrnustjórans Sean Dyche.
Það hefur ekki gengið vel hjá Everton á leiktíðinni hingað til. Fyrir leikinn gegn Arsenal í dag hafði liðið ekki unnið sigur í síðustu tíu leikjum. Frank Lampard var sagt upp störfum á dögunum og Sean Dyche, fyrrum stjóri Burnley, tók við stjórnartaumunum.
Everton var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og skapaði sér nokkur færi sem tókst þó ekki að nýta. Það var augljóst að leikmenn ætluðu að sýna sig fyrir nýjum þjálfara og baráttan til fyrirmyndar.
Í síðari hálfleik virtist Arsenal ætla að ná betri tök á leiknum. Gabriel Martinelli skaut yfir úr ágætu færi en á 59.mínútu komust heimamenn yfir þegar James Tarkowski skoraði með skalla. Fyrsta mark Tarkowski fyrir Everton en hann lék lengi vel undir stjórn Sean Dyche hjá Burnley.

Það sem eftir lifði leiks setti Arsenal pressu á heimaliðið. Leandro Trossard fékk ágætt færi en skaut framhjá þegar fimm mínútur voru eftir en toppliðið var í vandræðum með að skapa alvöru færi.
Everton vann að lokum ofboðslega mikilvægan 1-0 sigur og stuðningsmenn liðsins á Goodison Park fögnuðu gríðarlega.
Manchester City leikur á morgun gegn Tottenham og getur þá minnkað forskot Arsenal á toppnum niður í tvö stig.