Erlent

Telja sig hafa fundið eitt sögufrægasta skip Ástralíu

Samúel Karl Ólason skrifar
Eftirlíkingu HMS Endeavour siglt við strendur Ástralíu.
Eftirlíkingu HMS Endeavour siglt við strendur Ástralíu. AP/Mark Baker

Ástralskir sagnfræðingar, kafarar og aðrir sérfræðingar á vegum Sjóminjasafns Ástralíu telja sig hafa fundið hið sögufræga skip Endeavour, sem James Cook sigldi á um Kyrrahafið á árum áður. Þau hafa varið meira en tveimur áratugum í að rannsaka svæði undan ströndum Rhode Island í Bandaríkjunum.

Skipið hét formlega HMS Bark Endeavour og landkönnuðurinn James Cook sigldi á því yfir Kyrrahafið á árunum 1768 til 1771. Cook kortlagði á þeim tíma staði eins og Ástralíu og Nýja-Sjáland, sem Cook lagði eign á fyrir hönd bresku krúnunnar.

Skipið var selt og fékk nafnið Lord Sandwich en því var sökkt vísvitandi af Bretum við Newport-höfn í Rhode Island. Það var gert árið 1778 í frelsisstríði Bandaríkjanna.

Ástralarnir segja fimm skipum hafa verið sökkt af Bretum og fjögur þeirra hafi fundist. Nú hafi þeim tekist að sýna fram á að eitt þeirra sé í raun Endeavour.

Cook dó á Havaí árið 1778 en það ár var fyrstu fangaskipunum siglt frá Bretlandi til Ástralíu til að koma á laggirnar fyrstu nýlendunni þar.

Sky News hefur eftir Kevin Sumption, forstjóra Sjóminjasafnsins, að um mikilvægan fund sé að ræða því Endavour sé eitt mikilvægasta skip í sögu Ástralíu.

Hér má sjá myndband frá Sjóminjasafni Ástralíu um rannsóknina og niðurstöður sérfræðinga safnsins.

Bandaríkjamenn segja abbababb

Fornleifafræðingar í Bandaríkjunum segja þó að samstarfsmenn sínir í Ástralíu hafi verið of fljótir á sér. Bæði sé ekki fullvíst að um Endeavour sé að ræða og þeir saka Ástrala um að hafa brotið gegn samkomulagi sem vísindamennirnir gerðu sín á milli um rannsóknir þeirra.

D.K. Abbass, yfirmaður Rhode Island Marine Archaeology Project, segir hóp hennar hafa leitt leitina að Endeavour en enn sé of snemmt að segja með vissu að skipið hafi fundist. AP fréttaveitan hefur eftir Abbass að ýmsar mælingar stemmi við Endeavour en mörgum spurningum sé enn ósvarað.

Hún sagði enn fremur að þegar rannsókninni yrði lokið yrði gefin út rétt skýrsla.

Þrátt fyrir mótbárur frá Bandaríkjunum segist Sumption viss í sinni sök. Skipið sé Endeavour en einungis um fimmtán prósent skipsins séu enn á svæðinu. Sumpton segir að nú þurfi að hefja vinnu um hvernig hægt sé að varðveita það sem eftir er af skipinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×