Erlent

Ung­menni með krabba­mein kæra eig­endur kjarn­orku­versins í Fukus­hima

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Ungmennin krefjast um 700 milljóna króna í bætur vegna krabbameins sem þau þróuðu með sér í kjölfar kjarnorkuslyssins.
Ungmennin krefjast um 700 milljóna króna í bætur vegna krabbameins sem þau þróuðu með sér í kjölfar kjarnorkuslyssins. AP Photo/Mari Yamaguchi

Sex japönsk ungmenni hafa kært eignarhaldsfélag kjarnorkuversins í Fukushima eftir að þau greindust öll með skjaldkirtilskrabbamein í kjölfar kjarnorkuslyssins árið 2011. 

Ungmennin voru á aldrinum sex til sextán ára þegar hamfarirnar í Fukushima riðu yfir. Þau segjast öll hafa þróað með sér krabbamein vegna geislamengunar. Þá segir lögmaður ungmennanna að þau hafi öll þurft að gangast undir skurðaðgerð til að fjarlægja hluta skjaldkirtilsins. 

Ungmennin krefjast 5,4 milljóna dollara, eða um 700 milljóna króna, í skaðabætur frá fyrirtækinu sem rekur kjarnorkuverið, Tokyo Electric Power Company (Tepco). Sérfræðingar telja þó að þeim muni reynast erfitt að sanna að kjarnorkuslysið hafi leitt til krabbameinsins.

 Fukushima kjarnorkuslysið varð þann 11. mars 2011 eftir að stór jarðskjálfti leiddi til þess að flóðbylgja skall á austurströnd Japans. Kjarnorkuverið eyðilagðist í flóðbylgjunni og geislavirk efni láku út í nærliggjandi svæði. 

Kjarnorkuslysið var sagt það versta síðan kjarnorkuslysið varð í Tsjernóbíl árið 1986 en var talið hafa mun minni áhrif á íbúa í nágrenninu þar sem minna magn geislavirkra efna lak út í náttúruna. 

Hópur sérfræðinga á vegum Sameinuðu þjóðanna ákvörðuðu í fyrra að slysið hafi ekki leitt til neinna heilsufarsvandræða meðal íbúa og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin gaf út skýrslu árið 2013 þar sem fram kom að slysið myndi ekki leiða til aukinnar krabbameinstíðni á svæðinu. 

Langtímaáhrif slyssins hafa þó verið deilumál og árið 2018 tilkynntu japönsk yfirvöld að einn starfsmaður hafi dáið í kjölfar útsetningar fyrir geislavirkni. Fjölskyldu mannsins voru greiddar bætur af ríkinu vegna þessa. 

Ungmenin sex vilja nú meina að allar líkur séu á því að þau hafi þróað með sér krabbamein eftir að hafa verið útsett fyrir geislavirkni. Ekkert ungmennanna, sem nú eru 17 til 27 ára gömul, á fjölskyldumeðlim sem greinst hefur með skjaldkirtilskrabbamein. 


Tengdar fréttir

Áhrifa hamfaranna á Japan gætir enn áratug síðar

Fleiri en fjörutíu þúsund manns geta enn ekki snúið til síns heima vegna geislunar eftir kjarnorkuslysið í Fukushima nú þegar áratugur er liðinn frá því að sterkur jarðskjálfti og flóðbylgja gekk yfir Japan. Íbúar hamfarasvæðanna syrgja enn þúsundir ástvina sinna sem fórust.

Ætla að veita geislavirku vatni út í Kyrrahafið

Yfirvöld í Japan ætla að veita rúmlega milljón tonnum af geislavirku vatni úr Fukushima kjarnorkuverinu út í sjó. Nærri því áratugur er liðinn frá því að kjarnorkuverið skemmdist í kjölfar jarðskjálfta og flóðbylgju árið 2011.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×