Benzema sá um Athletic Bilbao

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Benzema sjóðheitur.
Benzema sjóðheitur. vísir/Getty

Real Madrid styrkti stöðu sína á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með sterkum útisigri á Athletic Bilbao í Baskalandi í kvöld.

Leikurinn byrjaði með flugeldasýningu því franski markahrókurinn Karim Benzema skoraði tvö mörk á fyrstu sjö mínútum leiksins.

Heimamenn vildu vera með í fjörinu því Oihan Sancet minnkaði muninn á 10.mínútu.

Eftir þessar hressilegu upphafsmínútur voru ekki skoruð fleiri mörk og 1-2 sigur Madridinga staðreynd.

Hafa þeir nú átta stiga forystu á toppi deildarinnar en Bilbao í 10.sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira