Tónlist

Rót­­gróin iðnaðar­drunga­út­­gáfa býður ís­lenskan lista­mann vel­kominn um borð

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
aska er raftónlistarverkefni Kristófers Páls Viðarssonar, þar sem hann tvinnar saman ljóð og hljóð.
aska er raftónlistarverkefni Kristófers Páls Viðarssonar, þar sem hann tvinnar saman ljóð og hljóð. Bryna Steinþórsdóttir

Í dag gefur tónlistarmaðurinn Kristófer Páll út nýja breiðskífu undir nafninu aska hjá þýska útgefandanum Galakthorrö. Tónlistin er unnin á svokallaða flaumræna hljóðgervla (e. analogue), og þá mestmegnis á modular hljóðgervil.

Hljóðheimurinn er útlendur og mekanískur, og mikið um að hljóðgervillinn sé notaður til að endurskapa hljóð sem heyra mætti á víðavangi í iðnvæddum heimi.

Breiðskífan er fáanleg á vínyl, geisladisk og kassettu, en áhangendur útgefandans hrepptu allar vínylplöturnar í forsölu skömmu eftir að Galakthorrö tilkynnti útgáfur ársins í október.

Galakthorrö er rótgróin útgáfa, rekin af meðlimum industrial-sveitarinnar Haus Arafna, sem sérhæfir sig í óhefðbundinni iðnaðarskotinni tónlist og á sér marga dygga fylgjendur. Vínylplöturnar frá útgáfunni hafa margar hverjar orðið safngripir með árunum.

Sjö ár eru orðin síðan frumburður ösku, grátónar, leit dagsins ljós. Kristófer segir verkefnið vera eins konar framlengingu á ljóðlistinni og hljóðheiminn vega þyngra en lagasmíðarnar sjálfar.

„Á undanförnum árum hefur hljóðhönnunin þróast í átt að industrial, stefnu sem einkennir Galakthorrö, en tónlistin er að miklu leyti unnin á modular hljóðgervil og innblásturinn sóttur inn á við. Það eimir lítið eftir trommuheiladrifnum einfaldleikanum sem einkenndi grátóna. Þess í stað ægir ólíkum jaðarstefnum saman með tilheyrandi dapurleika, ónotalegum tíðnum og iðnaðarskruðningum,“ segir listamaðurinn um plötuna nýju.

Brynja Steinþórsdóttir gerði myndband fyrir lagið falið, næstsíðasta lag plötunnar. Það má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×