Villareal komið í úr­slit Evrópu­deildarinnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Villareal fagna því að vera komnir í úrslit.
Leikmenn Villareal fagna því að vera komnir í úrslit. UEFA

Villareal og Arsenal gerðu markalaust jafntefli á Emirates-vellinum í Lundúnum síðari leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Villareal og lærisveinar Unai Emery því komnir í úrslit gegn Manchester United.

Úr leiknum í kvöld.Christopher Lee/Getty Images

Gestirnir vörðust fimlega en spilamennska Arsenal heillaði ekki. Á meðan hinn undanúrslitaleikurinn bauð upp á fimm mörk og fjöldann allan af dauðafærum var ekki það sama upp á teningnum í Lundúnum.

Pierre-Emerick Aubameyang komst næst því að tryggja Arsenal sigur en hann átti bæði skot og skalla í stöng í leiknum. Allt kom þó fyrir ekki og heimamönnum tókst ekki að brjóta niður gulan varnarmúr gestanna.

Lokatölur 0-0 og Unai Emery er því á leið í úrslit eftir að hafa slegið út sitt fyrrum félag. Þá fauk eini möguleiki Arsenal á að komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð út um gluggann.

Villareal er því mætt í úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Manchester United sem fram fer í Gdańsk í Póllandi þann 26. maí.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira