Real á toppinn eftir stórleik Benzema

Anton Ingi Leifsson skrifar
Benzema fagnar síðara marki sínu í kvöld.
Benzema fagnar síðara marki sínu í kvöld. Fran Santiago/Getty Images

Real Madrid skaust á topp La Liga deildarinnar á Spáni í kvöld með 3-0 útisigri á Cadiz.

Karim Benzema skoraði enn eitt markið, úr vítaspyrnu, eftir hálftíma leik og skömmu síðar hélt veisla Madrídinga áfram.

Alvaro Odriozola skoraði annað markið þremur mínútum síðar en þar var hinn sjóðheiti Benzema arkitektinn.

Benzema var ekki hættur því hann skoraði þriðja markið fyrir hlé og Madrídingar með myndarlega forystu í leikhléi.

Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 3-0. Real er á toppnum með 70 stig, jafn mörg stig og Atletico sem á leik til góða.

Sevilla er í þriðja sætinu með 67 stig eftir jafn marga leiki og Sevilla en Barcelona er í fjórða sætin umeð 65 stig og á tvo leiki til góða á Real.

Cadiz er í þrettánda sæti deildarinnar en þeir eru níu stigum frá falldraugnum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira