Evrópu­meistarar Lyon úr leik í Meistara­deildinni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Lyon er úr leik eftir 2-1 tap gegn PSG á heimavelli.
Lyon er úr leik eftir 2-1 tap gegn PSG á heimavelli. Johannes Simon - UEFA/UEFA via Getty Images

Lyon, lið Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 2-1 tap gegn Paris Saint-Germain í dag. Lyon vann fyrri leikinn 1-0, en PSG fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Sara Björk var ekki í leikmannahópi Lyon vegna meiðsla. Lyon komst yfir strax á fjórðu mínútu með marki frá Catarina Macario og heimakonur í góðum málum.

PSG jafnaði metin á 25. mínútu með marki frá Grace Geyoro og staðan því samtals 2-1 fyrir Lyon. Þannig var staðan þegar flautað var til hálfleiks, og PSG þurfti því á marki á halda til að koma sér í undanúrslitin.

Á 61. mínútu átti Kadidiatou Diani fyrirgjöf og miðvörður Lyon, Wendie Renard, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Ekki var meira skorað í leiknum og niðurstaðan því 2-1 sigur PSG, og samtals 2-2. Paris fer því áfram í undanúrslitin á fleiri útvallamörkum skoruðum á kostnað Lyon.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira