Conte tókst að sigra Gömlu konuna

Anton Ingi Leifsson skrifar
Antonio Conte var líflegur í kvöld, eins og svo oft áður.
Antonio Conte var líflegur í kvöld, eins og svo oft áður. Claudio Villa/Getty

Inter vann 2-0 sigur á Juventus í stórleik ítalska boltans í kvöld.

Antonio Conte hafði aldrei unnið leik gegn Juventus sem stjóri annars liðs en það tókst loksins í kvöld.

Arturo Vidal valdi réttan tímapunkt til þess að skora fyrsta mark hans á leiktíðinni en hann skoraði á tólftu mínútu.

1-0 var staðan í hálfleik en á sjöundu mínútu síðari hálfleiks tvöfaldaði Nicolo Barella forystuna fyrir Inter.

Juventus náði ekki að minnka muninn og þar við sat. Lokatölur 2-0.

Inter er með 40 stig í öðru sæti deildarinnar, jafn mörg stig og AC Milan, sem á þó leik til góða.

Juventus er í fimmta sætinu með 33 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira