Fótbolti

Sölvi í hóp hjá FCK

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images

Sölvi Geir Ottesen hefur ekki fengið að spila með FCK síðan í haust en er í hópp fyrir leik liðsins gegn Randers á morgun.

FCK tryggði sér nýverið danska meistaratitilinn og leikurinn hefur því litla þýðingu fyrir liðið.

Samningur Sölva rennur út í sumar en óvíst er hvað tekur við. Ljóst er að þjálfari FCK, Ariel Jacobs, hefur ekki áhuga á að nota kappann.

Ragnar Sigurðsson og Rúrik Gíslason eru einnig í leikmannahópi FCK fyrir leikinn á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×