Vændiskonur geta haft allt að fimm milljónir fyrir nóttina í Cannes Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar 15. maí 2013 07:26 Kvikmyndahátíðinni í Cannes virðist fylgja svallsamt líferni. Það tengist ekki síst snekkjum sem forríkir menn mæta á til hátíðarinnar. Elia Nahas segir fólk ekki geta ímyndað sér hversu háum fjárhæðum menn eyða til dæmis í vændiskonur.
Kvikmyndahátíðin í Cannes er að hefjast en sögur heyrast af óheyrilegum fjármunum sem lúxus-vændiskonur eru að hafa uppúr krafsinu í tengslum við hátíðina þá. Því er haldið fram að háklassa vændiskonur geti haft hátt í fimm milljónir króna fyrir nóttina í tengslum við snekkjupartí sem haldin eru meðan kvikmyndahátíðin í Cannes stendur yfir. Að sögn líbanska athafnamannsins Elia Nahas eru vændiskonurnar að hafa umtalsvert meira uppúr krafsinu en fólk getur ímyndað sér. Nahas var var handtekinn árið 2007 fyrir að reka vændishring sem var með starfsemi í Cannes en hann gerði út meira en fimmtíu konur sem einkum sinntu forríkum mönnum frá Mið-Austurlöndum sem sækja hátíðina. Nahas, sem er 48 ára og afplánar nú átta ára fangelsisdóm, fullyrðir í samtali við The Hollywood Reporter að þær geti haft allt upp í fimm milljónir fyrir nóttina. Hann segir Araba örlátustu menn veraldar og ef þeir eru ánægðir þá eru þeir ósínkir á féð. Og þegar þeir eru í Cannes eru þeir sumir hverjir með ókjör fjár með sér til að eyða. Fyrir þeim er þetta bara pappír, þeir telja ekki einu sinni seðlana heldur afhenda stúlkunum þá án umhugsunar, segir Nachas. Hann á módelskrifstofu í Beirut og starfaði þá fyrir Moatessem Gadhafi, son Muammar Gadhafi, sem myrtur var í Líbýu árið 2011. Hann heldur fram sakleysi sínu og neitar því að hafa verið að reka vændishring en segist vita hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. Og víst er að mikið er um dýrðir í Cannes og svallsamt lífernið fylgir. Haft er eftir Roger Ebert heitnum, hinum fræga kvikmyndagagnrýnanda, að: „Vændiskonurnar bera af í Cannes, þær eru vel klæddar og reykja ekki.“ Sjá nánar hér.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira