Erlent

Óttast áhrif viðskiptasamnings við Kína á efnahag landsins

Mótmælendur við þinghúsið í Taívan héldu á sólblómum, en þau eru táknmynd mótmælanna sem staðið hafa í tvær vikur.
Mótmælendur við þinghúsið í Taívan héldu á sólblómum, en þau eru táknmynd mótmælanna sem staðið hafa í tvær vikur. Fréttablaðið/AP
Að minnsta kosti hundrað þúsund mótmælendur komu saman við þinghúsið í Taívan á sunnudag til að mótmæla viðskiptasamningi við Kína. Mótmælendurnir telja samninginn hafa skaðleg áhrif á efnahag landsins og grafa undan innlendri framleiðslu.

Skorað er á forseta landsins að hverfa frá þeirri stefnu að styrkja efnahagsleg tengsl landsins við Kínverja.

Samningurinn var samþykktur á síðasta ári en bíður staðfestingar á þinginu. Mótmælin hafa staðið yfir í hátt í tvær vikur og fer mótmælendum ört fjölgandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×