Kenndi rangan háskólakúrs í heila önn Kjartan Atli Kjartansson skrifar 31. mars 2014 11:37 Nguyen til vinstri og Firmin til hægri.
Háskólakennari við Lonestar-háskólann í Houston í Texasfylki í Bandaríkjunum kenndi rangan kúrs í heila önn. Upp komst um mistökin rétt fyrir lokapróf í kúrsinum. Shirley Nguyen átti að kenna inngang að efnafræði en kenndi í staðinn framhaldsáfanga í faginu. Sem reyndist nemendum hennar ákaflega erfiður. Lauren Firmin, nemandi Nguyen, lækkaði heldur betur í einkunn. Áður en Firmin skráði sig í áfangann hjá Nguyen hafði hún alltaf fengið hæstu einkunn. Hún var með fjóra af fjórum mögulegum í meðaleinkunn, sem er eftirsóknarvert, sérstaklega ef nemendur hyggja á frekara nám og ætla sér í virtari skóla. „Allt í einu fór ég að fá í kringum fjóra í skyndiprófum,“ útskýrir Firmin við bandarísku fréttastofuna KHOU í Texas. Hún bætir við: „Ég lærði eins og ég gat og reyndi allt sem ég gat.“ Rétt fyrir lokaprófið í áfanganum fóru nemendur að spyrja spurninga. Þá segir Firmin að kennari hennar hafi viðurkennt ótrúleg mistök. „Hún sagði okkur í tíma að hún hafði verið að kenna framhaldsáfanga í efnafræði alla önnina,“ rifjar Firmin upp og bætir við að þessar upplýsingar hafi sett hlutina í samhengi. Þessi slæmi árangur nemenda var í raun skiljanlegur. Nguyen, hinn mistæki kennari, ætlaði að leysa málið með því að gefa nemendum auka einingu fyrir að hafa setið þennan erfiða kúrs og hækkaði einkunnir. En Firmin sætti sig ekki við það, hennar stórkostlega meðaleinkunn var farin í vaskinn. Hún kvartaði og kærði til skólastjórnenda.Engin svör Nguyen vildi ekkert segja um málið. Þrátt fyrir að vera þráspurð af fréttamanni. Skólastjóri Lonestar-háskólans, John Powell, sagði að engin mistök hafi verið gerð. „Hún kenndi réttan kúrs,“ segir skólastjórinn. Hann gaf lítið fyrir kvartanir nemenda og að þeir hafi sagt að Nguyen hafi viðurkennt mistök sín. „Ég var ekki þarna, þú varst ekki þarna. Ég get ekkert sagt hvað fór fram í skólastofu sem ég var ekki í“ Fréttastofa KHOU hefur birt tölvupóst sem staðfestir frásögn nemenda. Powell segist samt ekki ætla að rannsaka málið. „Við erum með þá stefnu að fara ekki í formlegar rannsóknir á kúrsum,“ útskýrir hann en segist ætla að skoða málið nánar. Firmin kræði málið til skólayfirvalda og vildi gera einkunn sína ógilda, svo hún gæti haldið hinni fullkomnu meðaleinkunn en hafði ekki erindi sem erfiði. Hér að neðan má sjá sjónvarpsfrétt um málið.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Sjá meira