Erlent

Hryðjuverkasamtök berjast stuttu fyrir kosningar

Ingvar Haraldsson skrifar
Óöld hefur ríkt í Líbíu undanfarin ár.
Óöld hefur ríkt í Líbíu undanfarin ár. VÍSIR/AFP
Boðað hefur verið til þingkosninga í Líbíu þann 25. júní næstkomandi.

Kosningarnar verða þær fyrstu í landinu frá því Muammar Gaddafi var komið frá völdum árið 2011. BBC greinir frá.



Þrátt fyrir það óttast margir að borgarastyrjöld muni brjótast út í landinu. Sjötíu manns féllu í bardögum tveggja skæruliðafylkinga í Benghazi á föstudaginn.



Pólitískur óstöðugleiki er einnig talsverður en þrír forsætisráðherrar hafa verið í landinu síðan í mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×