Erlendir vildu fjárfesta í REI en fengu ekki Höskuldur Kári Schram skrifar 19. apríl 2009 18:43
Þrír alþjóðlegir fjárfestingarsjóðir höfðu áhuga að fjárfesta í Reykjavík Energy Invest áður félagið var sameinað Geysir Green Energy. Fulltrúar sjóðanna fengu hins vegar aldrei að koma að samningaborðinu. Til stóð að sameina REI og Geysir Green Energy í októbermánuði árið 2007. Geysir Green var þá að stórum hluta í eigu FL Group. Ekkert varð hins vegar af sameinungunni eins og frægt er orðið. Í byrjun septembermánaðar, aðeins nokkrum vikum áður en Geysir Green kom að málinu, höfðu þrír alþjóðlegir fjárfestingasjóðir lýst yfir miklum áhuga á að fjárfesta í REI. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða virta fjárfestingasjóði sem sérhæfa sig meðal annars í grænni orku. Fulltrúar þessara sjóða höfðu boðað komu sína hingað til lands og vildu ræða við fulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur og REI um mögulegar fjárfestingar. Talað var um mörg hundruð milljónir dollara í þessu samhengi. Áhuginn var gríðarlega mikill samkvæmt heimildum fréttastofu og í sumu tilfellum voru fulltrúar sjóðanna búnir að bóka flug til landsins þó ekki væri búið að ákveða neina formlega fundi. Samkvæmt heimildum fréttastofu sýndi hins vegar stjórn REI málinu lítinn áhuga. Aðeins nokkrum dögum áður en til stóð að fulltrúar sjóðanna kæmu til landsins var tilkynnt um sameiningu REI og Geysis Green Energy. Heimildarmenn fréttastofu segja að ef sjóðirnir hefðu fengið að fjárfesta í REI hefði samkeppnisstaða Geysis Green á markaðinum skaðast verulega. Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sagði nýlega í fjölmiðlum að það hafi vakið sérstaka athygli á sínum tíma hversu hratt átti að keyra sameiningu félaganna í gegn. Aðkoma FL Group að málinu hafi verið óeðlileg en daginn eftir að tilkynnt var um sameininguna var haldinn hluthafafundur FL Group í London. Þá hafi styrkveitingar FL Group til Sjálfstæðisflokks varpað nýju ljósi á málið og hefur Svandís kallað eftir því að Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi stjórnarformaður Orkuveiturnnar og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgarstjóri, upplýsi um sína prófkjörsstyrki. Ekki náðist í Björn Inga Hrafnsson eða Hauk Leósson, fyrrverandi stjórnarmenn REI í dag.
Mest lesið Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Trump: Khamenei látinn Erlent Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Innlent Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Innlent Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Innlent Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Innlent Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Erlent Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Innlent Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Fleiri fréttir Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Um helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af ásælni Bandaríkjanna í Grænland Fjórtán gefa kost á sér á lista Sjálfstæðismanna í Eyjum Guðmundur Árni leiðir áfram listann Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Forsetahjónin verða viðstödd vígslu íþróttamannvirkis í Búðardal Árás á Íran, Háskóladagurinn og stórkostlegur endurkomusigur Framboðslistinn í Reykjanesbæ staðfestur Frostlaust sums staðar sunnan heiða Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ „Nú verður fjör” hjá Sjálfstæðismönnum sem kynna lista í Mosó Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Vendingar í borginni, vandræði vegna verktaka og Pepsi-sátt Framsókn sviptir hulunni af framboðslista í Mosó Rósin áfram í hnappagati Samfylkingarinnar Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar „Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Sjá meira