Íslenskir hestar vanræktir: Eigandinn ætlar að áfrýja 2. nóvember 2011 16:45
Inge Johanson, eigandi íslensku hestanna í Svíþjóð segist ætla að áfrýja ákvörðun heilbrigðisyfirvalda sem tóku af honum tuttugu hross vegna slæmrar umhirðu. Hann á yfir höfði sér ákæru um dýraníð. Johanson segist ekki hafa fengið tækifæri til þess að laga aðbúnað dýranna en af myndum af dæma eru þau afar illa haldin. Hann segir í samtali við sænska blaðið Arbetarbladet að járningamaður hafi svikið sig um að koma til þess að tálga hófa hestanna en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur það ekki veið gert í mjög langan tíma. Hann viðurkennir ennfremur að það hafi verið mistök að láta suma hestana hýrast inni í marga mánuði en augljóst er að ekki hefur verið mokað undan þeim í langan tíma. Hann er hinsvegar afar ósáttur við viðbrögð lögreglu og dýralæknisins en fjórir hestar voru aflífaðir um leið og yfirvöld komust í málið. Hann segir að það hafi verið ónauðsynlegt og að dýrin hafi ekki verið eins illa haldin og dýralæknirinn vildi meina. Málið hefur valdið mikilli ólgu í Sandviken en Johanson var um margra ára skeið formaður áhugamannafélags um íslenska hestinn. Félagsmenn hafa sumir gagnrýnt stjórn félagsins harðlega og sagt að í mörg ár hafi menn vitað af meðferð mannsins á dýrum sínum án þess að nokkuð væri að gert.
Tengdar fréttir Ill meðferð á íslenskum hestum vekur óhug í Svíþjóð Fréttir af skelfilegri meðferð á tuttugu íslenskum hestum hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð. Eigandi hestanna var þangað til í gær formaður hestafélagsins Gyda í Sandvik en það er hópur áhugamanna um íslenska hestinn. Heilbrigðisyfirvöld komust hinsvegar á snoðir um að maðurinn, Inge Johanson, færi vægast sagt illa með sín eigin hross. Myndir hafa nú verið birtar af dýrunum og eins og sjá má á þeim eru þau hrikalega illa haldin. 2. nóvember 2011 10:07 Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður Sjá meira
Ill meðferð á íslenskum hestum vekur óhug í Svíþjóð Fréttir af skelfilegri meðferð á tuttugu íslenskum hestum hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð. Eigandi hestanna var þangað til í gær formaður hestafélagsins Gyda í Sandvik en það er hópur áhugamanna um íslenska hestinn. Heilbrigðisyfirvöld komust hinsvegar á snoðir um að maðurinn, Inge Johanson, færi vægast sagt illa með sín eigin hross. Myndir hafa nú verið birtar af dýrunum og eins og sjá má á þeim eru þau hrikalega illa haldin. 2. nóvember 2011 10:07