Erlent

Drekkti 11 ára syni sínum vegna hárra skólagjalda

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Sonurinn, James Taylor.
Sonurinn, James Taylor.

Bresk kona á fimmtugsaldri játaði fyrir rétti í gær að hafa orðið ellefu ára gömlum syni sínum að bana í desember á grundvelli þess að hún gat ekki lengur staðið undir greiðslu skólagjalda við einkaskóla sem hann sótti. Konan, sem á við geðræn vanheilindi að stríða, eitraði fyrir drengnum og drekkti honum svo í baðkari. Dómari úrskurðaði að konan skyldi gangast undir ítarlega geðrannsókn og sæta vistun á viðeigandi stofnun. Hann frestaði réttarhöldunum svo þar til niðurstöður þeirrar rannsóknar lægju fyrir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×