Erlent

Tónlistarhátíðir fara ekki varhluta af kreppunni

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Frá Sziget-hátíðinni í Búdapest árið 2007, meðan allt lék í lyndi.
Frá Sziget-hátíðinni í Búdapest árið 2007, meðan allt lék í lyndi. MYND/Reuters

Fyrirsjáanlegt er að nokkrar þekktar tónlistarhátíðir í Evrópu, til dæmis Hróarskelduhátíðin í Danmörku og ungverska Sziget-hátíðin, muni draga að sér töluvert færri gesti en í meðalári vegna þeirra efnahagsþrenginga sem nú herja á íbúa álfunnar. Þegar er farið að heyrast af miðasölu með verulegum afslætti og bjóða aðstandendur Sziget til dæmis miða á hálfvirði nái fólk að smala saman 45 manna hópi. Annars staðar hefur hljómsveitum verið fækkað eða hátíðir jafnvel verið blásnar af með öllu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×