Tíu stærstu skulduðu rúmlega 1500 milljarða Helga Arnardóttir skrifar 1. ágúst 2009 15:47
Tíu stærstu viðskiptavinir Kaupþings skulduðu bankanum rúmlega fimmtán hundruð milljarða króna samkvæmt lánayfirliti frá því í lok september í fyrra. Þetta eru tæplega þreföld fjárlög ríkissjóðs. Þetta kemur fram í 210 blaðsíðna glæruyfirliti yfir stærstu lántakendur Kaupþingssamstæðunnar sem lagt var fyrir stjórnarfund bankans rétt fyrir hrun í fyrra eða þann 25. september. Glærurnar voru settar á heimasíðuna Wikileaks sem ætlað er að hýsa leka af þessu tagi. Í lánayfirlitinu eru félög tengd Bakkabræðrum, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tchenguiz bræðrum með stærstu lánin. Tekið skal fram að lánin eru reiknuð miðað við núverandi gengi. Félög tengd Bakkbræðrum fengu rúmlega þrjú hundruð þrjátíu og tvo milljarða króna í lán frá Kaupþingi og fékk Exista hf tæplega helming þeirrar upphæðar eða rúmlega hundrað og fjörutíu milljarða. Í lánayfirlitinu kemur fram að stærstur hluti lánanna sé ótryggður. Þá fengu félög tengd Jóni Ásgeiri Jóhannessyni þrjú hundruð tuttugu og sex milljarða í lán. Tchenguiz bræður fengu rúmlega tvö hundruð áttatíu og sex milljarða í lán frá Kaupþingi en Róbert Tchenguiz situr í stjórn Existu. Þá vekur athygli að Skúli Þorvaldsson sem kenndur er við Hótel Holt er stærsti lántakandi Kaupþings í Lúxemborg og fékk tæplega hundrað fjörutíu og þrjá milljarða króna í lán. Félög tengd Ólafi Ólafssyni svo sem Kjalar, Samskip og fleiri fengu tæplega hundrað fjörutíu og tvo milljarða í lán. Þá fengu félög tengd Kevin Stanford sem er viðskiptafélagi Baugs rúmlega hundrað og þrjá milljarða. Antonios Yerelemou sem er viðskiptafélagi Bakkabræðra fékk sextíu og sex milljarða. Félög tengd Jákubi Jakobsen sem á meðal annars Rúmfatalagerinn, Ilvu og fleiri fyrirtæki fengu tæplega fimmtíu og átta milljarða Félög tengd Jóni Helga Guðmundssyni eiganda Byko fengu rúmlega fjörutíu og sex milljarða. Þá fékk Saxhóll rúma fjörutíu og tvo milljarða í lán. Samtals eru þetta rúmlega fimmtán hundruð fjörutíu og fjórir milljarðar króna sem félögin fengu lánað frá Kaupþingi. Það jafngildir tæplega þreföldum fjárlögum ríkissjóðs fyrir þetta ár. Auk annarra sem fengu stór lán hjá bankanum voru stoðtækjafyrirtækið Össur, 39,5 milljarða, Samvinnutrygginasjóðurinn, 30,2 milljarða, félög tengd Björgólfsfeðgum, 22,7 milljarða og félög tengd Þorsteini M. Jónssyni, 13,2 milljarða.Hér að neðan má sjá samantekt fréttastofu upp úr skýrslunni, en að neðan má einnig nálgast skýrsluna í heild sinni.
Tengdar fréttir Milljarðalán bræðra fjármagnaði fasteignir og einkaflugvél Lýður Guðmundsson, annar Bakkavararbræðra, tók lán hjá Kaupþingi í Lúxemborg upp á 12,75 milljónir punda, um 2,6 milljarða króna, til að fjármagna húsakaup sín í London. Lýður er í persónulegri ábyrgð fyrir láninu. 1. ágúst 2009 13:38 Ætla ekki að hjálpa Kaupþingi að fela óhreint tau Í svarbréfi sem forsvarsmaður heimasíðunnar WikiLeak sendi lögmannateymi Kaupþings þverneitar hann að taka upplýsingar um lántakendur bankans út af síðunni líkt og lögmennirnir höfðu beðið hann um. 31. júlí 2009 21:10 Kaupþing fer fram á lögbann Ríkisútvarpinu hefur verið tilkynnt um að væntanleg sé lögbannsbeiðni frá Kaupþingi til að stöðva frekari birtingu upplýsinga úr leyniglærum Kaupþings um skuldunauta bankans, að því er fram kemur á fréttavef RÚV. 1. ágúst 2009 15:16 Yfirlýsing Kaupþings: Upplýsingar um lán brot á bankaleynd Verið er að rannsaka uppruna upplýsinga um lántakendur Kaupþings sem birtust á heimasíðunni WikiLeak fyrir sólarhring, að því er fram kemur í yfirlýsingu bankans. Fjármáleftirlitinu hefur verið gert viðvart um málið. 31. júlí 2009 20:28 Lagaprófessor telur líklegt að fallist verði á lögbann Sigurður Líndal, lagaprófesor, telur líklegt að fallist verði á lögbannskröfu Kaupþings, þó hann þori ekki að fullyrða um það. 1. ágúst 2009 15:38 Leyniglærum Kaupþings lekið: Gífurlegar fjármagnshreyfingar Upplýsingum um gífurlegar fjármagnshreyfingar innan Kaupþingssamstæðunnar rétt fyrir fall hans hefur verið lekið á netið, að því er fram kemur í kvöldfréttum RÚV. 31. júlí 2009 19:46 Keypti Haga á 30 milljarða Fjárfestingarfélagið Gaumur, sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, fékk þrjátíu milljarða króna lán til að kaupa 95 prósenta hlut í Högum af Baugi Group í gegnum félagið 1998 ehf. 1. ágúst 2009 14:42 Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira
Milljarðalán bræðra fjármagnaði fasteignir og einkaflugvél Lýður Guðmundsson, annar Bakkavararbræðra, tók lán hjá Kaupþingi í Lúxemborg upp á 12,75 milljónir punda, um 2,6 milljarða króna, til að fjármagna húsakaup sín í London. Lýður er í persónulegri ábyrgð fyrir láninu. 1. ágúst 2009 13:38
Ætla ekki að hjálpa Kaupþingi að fela óhreint tau Í svarbréfi sem forsvarsmaður heimasíðunnar WikiLeak sendi lögmannateymi Kaupþings þverneitar hann að taka upplýsingar um lántakendur bankans út af síðunni líkt og lögmennirnir höfðu beðið hann um. 31. júlí 2009 21:10
Kaupþing fer fram á lögbann Ríkisútvarpinu hefur verið tilkynnt um að væntanleg sé lögbannsbeiðni frá Kaupþingi til að stöðva frekari birtingu upplýsinga úr leyniglærum Kaupþings um skuldunauta bankans, að því er fram kemur á fréttavef RÚV. 1. ágúst 2009 15:16
Yfirlýsing Kaupþings: Upplýsingar um lán brot á bankaleynd Verið er að rannsaka uppruna upplýsinga um lántakendur Kaupþings sem birtust á heimasíðunni WikiLeak fyrir sólarhring, að því er fram kemur í yfirlýsingu bankans. Fjármáleftirlitinu hefur verið gert viðvart um málið. 31. júlí 2009 20:28
Lagaprófessor telur líklegt að fallist verði á lögbann Sigurður Líndal, lagaprófesor, telur líklegt að fallist verði á lögbannskröfu Kaupþings, þó hann þori ekki að fullyrða um það. 1. ágúst 2009 15:38
Leyniglærum Kaupþings lekið: Gífurlegar fjármagnshreyfingar Upplýsingum um gífurlegar fjármagnshreyfingar innan Kaupþingssamstæðunnar rétt fyrir fall hans hefur verið lekið á netið, að því er fram kemur í kvöldfréttum RÚV. 31. júlí 2009 19:46
Keypti Haga á 30 milljarða Fjárfestingarfélagið Gaumur, sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, fékk þrjátíu milljarða króna lán til að kaupa 95 prósenta hlut í Högum af Baugi Group í gegnum félagið 1998 ehf. 1. ágúst 2009 14:42