Landamærum Egypta að Gasa lokað 9. ágúst 2012 04:00 Egypskir hermenn fylgdu landamæravörðunum sextán til grafar í Kaíró, höfuðborg Egyptalands. fréttablaðið/ap
Mohammed Morsi, forseti Egyptalands, hefur rekið yfirmann egypsku leyniþjónustunnar og ríkisstjóra Sínaí-hérðas í kjölfar mannskæðustu árásar skæruliða á egypskt herlið um helgina. Samskipti nýrrar ríkisstjórnar Egyptalands og Hamas-stjórnarinnar á Gasa-svæðinu hafa versnað eftir að Egyptar lokuðu landamærum að Gasa. Morsi er hliðhollur hinu svæðisbundna Bræðralagi múslima rétt eins og Hamas-samtökin. Sextán egypskir hermenn féllu við landamærastöð á Sínaí-skaga nærri Gasa-svæðinu þegar íslamskir skæruliðar gerðu á þá árás. Talið er að skæruliðarnir séu frá Sínaí-skaga, hafi laus tengsl við al-Qaida og hafi fengið hjálp af Gasa-svæðinu. Hamas-stjórnin hefur lofað að hjálpa Egyptum með rannsókn málsins en neita því að nokkur íbúi Gasa-svæðisins tengist málinu á nokkurn hátt. Verð á bygginarhráefni er í hæstu hæðum vegna lokun landamæranna og hundruðir sjúklinga eru strandaglópar á Gasa og fá ekki nauðsynlega læknisaðstoð. Ísraelar hamla umferð um öll önnur landamæri að Gasa. Egypskur sendiherra gagnvart Palestínumönnum á Vesturbakkanum sagði í gær að landamærin yrðu lokuð þar til öryggi hefði verið tryggt á ný. Íbúar Gasa-svæðisins eru 1,7 milljón manns. Síðan Hamas náði þar völdum árið 2007 hafa Egyptar og Ísraelar haldið strangt landamæraeftirlit. Palestínskur hagfræðingur segir lokun landamæranna mega vera í tíu daga áður en verkamenn missi vinnuna vegna hráefnisskorts.- bþh
Mest lesið Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Erlent Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Erlent Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Innlent Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Innlent Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Erlent Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Erlent Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Innlent Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Innlent Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Innlent Fleiri fréttir Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Sjá meira