Bandaríkjamenn aðstoða við hreinsunarstarf í Víetnam 9. ágúst 2012 08:39 Eitrið getur haft skaðleg áhrif á fólk og valdið fæðingargöllum. mynd/AP
Fimmtíu árum eftir að bandarískar herþotur létu hið alræmda plöntueitur Agent Orange rigna yfir skógarþykknið í Víetnam hafa yfirvöld í Bandaríkjunum ákveðið að beita sér í hreinsun svæðisins. Eftir að eitrið var notað myndaðist mikið díoxín en það er aukaafurð laufeyðirsins. Erindrekar frá Bandaríkjunum tilkynntu um hreinsunarátakið við hátíðlega athöfn á herstöðinni í Danang fyrr í vikunni. Síðustu hálfa öld hefur díoxín seitlað ofan í jarðveginn í Víetnam og mengað vatnsbirgðir landsins. Lengi vel hefur verið vitað að efnið getur valdið fæðingargöllum og öðrum fötlunum. Frá því að stríðinu í Víetnam lauk fyrir hartnær fjórum áratugum hefur notkun efnisins og afleiðingar þess orsakað mikla gremju milli landanna. Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa ekki beitt sér að ráði í málinu fyrr en nú. Árið 2007 var Víetnömum heitið 60 milljónum dollara af hálfu Bandaríkjanna en peningana átti að nota til að hreinsa jarðveg landsins. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsótti Víetnam á dögunum. Þar sagði hún að þjóðirnar ættu að horfast í augu við fortíðina og vinna saman að því að gera upp afleiðingar stríðsins.
Mest lesið Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Innlent Hildur með pálmann í höndunum Innlent „Hvað sagðiru, 42? Það er geðveikt!“ Innlent Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Innlent Lokatölur í Kópavogi: Ásdís með hreinan meirihluta Innlent Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Innlent Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylking tapar fulltrúum og meirihluti heldur Innlent Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Fleiri fréttir Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Sjá meira