Lundúnasprengjumenn handteknir 29. júlí 2005 00:01
Allir mennirnir fjórir, sem voru eftirlýstir fyrir að hafa reynt að sprengja sprengjur í jarðlestum og strætisvagni í Lundúnum þann 21. júlí, eru nú í haldi lögreglu, að því er breskir fjölmiðlar fullyrtu í gær. Sérsveitarmenn bresku lögreglunnar, vopnaðir hríðskotabyssum og táragasi, gerðu áhlaup á tvær íbúðarblokkir í vesturhluta Lundúna í gær og handtóku þar tvo sprengjumannanna fjögurra. Einn fjórmenninganna var handtekinn í Birmingham á miðvikudag. Síðdegis í gær fréttist svo að fjórði meinti sprengjumaðurinn hefði verið handtekinn í Róm. Hann kvað vera Osman Hussain, breskur ríkisborgari upprunninn í Sómalíu. Hann er grunaður um misheppnuðu sprengjuárásina í jarðlest við Shepherd's Bush-stöðina á fimmtudeginum fyrir rúmri viku. Nöfn hinna tveggja voru ekki gefin upp að svo stöddu, en samkvæmt heimildum fréttavefs BBC eru þessir menn þeir sem eftirlýstir voru fyrir að hafa reynt að sprengja heimatilbúnar sprengjur í strætisvagni á Hackney Road og í jarðlest við Oval-stöðina. Þá handtók lögregla einnig tvær konur á Liverpool Street-lestarstöðinni í miðborg Lundúna í gær. Stöðin var rýmd er handtökurnar fóru fram. Að sögn vitna stóð önnur konan í biðröð í lestina til Stansted-flugvallar er lögreglumenn skelltu henni í gólfið. Ekki lá fyrir hvort talið væri að hinar handteknu tengdust sprengjutilræðunum. Íbúðarblokkirnar þar sem hinir grunuðu voru handteknir eru í Notting Hill-hverfinu. Í grennd við aðra þeirra er garður þar sem sprengja fannst í bakpoka um síðustu helgi. Sá fundur vakti grun um að sprengjumennirnir hefðu verið fimm en ekki fjórir. Sky News-stöðin greindi einnig frá því að einn maður enn hefði verið handtekinn í Hackney í Austur-Lundúnum. Á fimmtudag handtók lögregla níu menn í áhlaupi á hús í Tooting-hverfi í suðurhluta borgarinnar. Alls eru nú yfir 20 manns í haldi í tengslum við rannsókn sprengjuárásanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira