Erlent

63 látnir í fellibyl í Kína

Sextíu og þrír létust og átján hundruð eru slasaðir eftir að fellibylurinn Rananim gekk yfir Kína í gærkvöldi. Nærri tvö hundruð eru alvarlega slasaðir og yfir átján þúsund byggingar hrundu til grunna. Miklar skemmdir urðu á hrísgrjónaökrum í þessum versta fellibyl í Kína í sjö ár en þá létust tvö hundruð og fimmtíu manns. Tæplega hálf milljón íbúa hafa flúið heimili sín en vindhraði hefur farið yfir fjörutíu metra á sekúndu. Yfirvöld í Zhe-jiang héraði hafa óskað eftir aðstoð frá ríkisstjórn landsins vegna hörmunganna. Gríðarlegar rigningar fylgdu fellibylnum og hafa aurskriður verið miklar. Hægt er að horfa á fréttina úr morgunsjónvarpi Stöðvar 2 með því að smella á hlekkinn hér að neðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×