Segja Obama-æðið hafa átt rétt á sér 2. maí 2009 06:00 Strax á fyrsta degi í embætti undirritaði Obama tilskipun um að loka eigi fangabúðunum á Kúbu. Á bak við hann standa Joe Biden varaforseti og herforingjar á eftirlaunum. nordicphotos/AFP
Barack Obama fagnaði á miðvikudag þeim áfanga að hafa verið hundrað daga í einu valdamesta embætti heims. Stuðningsmenn forsetans segja afrek hans þessa rúmu þrjá mánuði staðfesta að Obama-æði heimsbyggðarinnar hafi átt fullan rétt á sér. „Við eigum fullan rétt á Obamaæðinu okkar,“ skrifar Jean-Marcel Bourguereau, ritstjóri franska fréttatímaritsins Le Nouvel Observateur, og telur upp nokkur helstu afrek Bandaríkjaforseta þessa fyrstu hundrað daga. Fáum dylst að Obama hefur ekki setið auðum höndum síðan hann tók við einu valdamesta embætti heims. Meðal afrekanna má nefna væntanlega lokun Guantanamo-búðanna, bann við pyntingum, væntanlegt brotthvarf frá Írak, horfur á bættum samskiptum við Rússland og múslimaheiminn, við Kúbu, Íran og jafnvel Norður-Kóreu, og er þetta engan veginn tæmandi upptalning. Obama hefur greinilega gert sér far um að kúvenda frá stefnu fyrri stjórnar í sem flestum málum og hann virðist vilja fara sáttaleiðina frekar en að efna til ágreinings og átaka. Skiptar skoðanirFjölskyldan með nýja hundinn Þótt hundurinn, sem dætur forsetans fengu á dögunum, hafi ekki mikla heimspólitíska þýðingu vakti hann þó mikla athygli í fjölmiðlum víðs vegar um heiminn.nordicphotos/afpSkoðanakannanir sýna að almenningur í Bandaríkjunum er harla ánægður með frammistöðuna, þótt repúblikanar hafi sumir hverjir harðlega gagnrýnt það sem Obama hefur tekið sér fyrir hendur fyrstu hundrað dagana. Dick Cheney, fyrrverandi varaforseti, og fleiri segja hann til dæmis stefna öryggi Bandaríkjanna í voða með glannalegri eftirgjöf við óvini þjóðarinnar og uppljóstranir um umdeildar starfsaðferðir leyniþjónustunnar. Mannréttindasmtökin Amnesty International eru síðan á þveröfugri skoðun og segja alltof lítið hafa gerst. Þrátt fyrir að Obama hafi til dæmis lofað að loka Guantanamo-búðunum og tryggja föngunum þar réttláta meðferð, þá hafi ekkert gerst í málum þeirra. Hundrað dögum eftir valdatökuna mega þeir enn dúsa í klefum sínum, sumir eftir nærri átta ára fangelsi án dóms og laga. Bara byrjuninSjálfur tekur Obama fram að margt sé vissulega ógert af því sem hann ætlar að taka sér fyrir hendur. „Ég held að þetta sé góð byrjun, en þetta er samt bara byrjunin,“ sagði hann á blaðamannafundi í Washington á miðvikudaginn, þegar hann fagnaði hundrað daga áfanganum. „Ég er stoltur af því sem okkur hefur tekist að gera, en það er ekki nóg.“ Að mörgu leyti hafa Obama og ríkisstjórn hans þó haldið áfram á sömu braut og Bush-stjórnin. Í glímu sinni við efnahagskreppuna hefur Obama til dæmis að mestu leyti fylgt þeirri leið, sem mörkuð var af Bush-stjórninni, enda kom áfallið í haust honum jafn mikið á óvart og öðrum. Kosningabaráttan hafði ekki snúist um viðbrögð við efnahagshruni og þar af leiðandi hafði engin sérstök stefna verið mótuð í kosningabúðum Obama. Tækifæri í kreppunniObama hefur vissulega þurft að glíma við erfiðari verkefni strax frá fyrsta degi sínum í embætti en flestir forverar hans. Fyrir utan efnahagskreppuna, sem bjartsýnir hagfræðingar segjast þó farnir að sjá fyrir endann á, höfðu Bandaríkin einangrast rækilega á alþjóðavettvangi í stjórnartíð George W. Bush. Þótt Obama njóti velvildar víðast hvar í heiminum, þá er varla von á því að aftur grói um heilt alls staðar alveg á næstunni. Gamli refurinn Henry Kissinger, sem var utanríkisráðherra í stjórn Richards Nixons á áttunda áratugnum, segir reyndar í nýlegri blaðagrein að efnahagskreppan gefi Obama einstakt tækifæri til að ná fram grundvallarbreytingum á fjölmörgum sviðum heimsmálanna: „Efnahagskreppan sýgur til sín orku allra helstu ríkjanna; hver svo sem ágreiningsefni þeirra eru, þá þurfa þau öll að hvíla sig á milliríkjadeilum,“ skrifar Kissinger í Washington Post.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira