Rúnar: Tók einlæga útgáfu af Mýrdalssandinum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. október 2012 11:30 Rúnar er hér fyrir miðri mynd. Mynd/Stefán
Rúnar Már Sigurjónsson er nýliðinn í íslenska landsliðinu og var hann því vígður inn í hópinn með viðhöfn eftir að hann var kallaður inn. Þeir Rúnar Már og Pálmi Rafn Pálmason voru teknir inn í landsliðið fyrir leikinn gegn Sviss í dag vegna leikbanns Arons Einars Gunnarssonar og þá er Helgi Valur Daníelsson frá vegna veikinda. „Mér líður mjög vel enda er ekki annað hægt við þessar aðstæður," sagði Rúnar Már fyrir æfingu landsliðsins á Laugardalsvelli í gær. Rúnar Már er á mála hjá Val en liðin í Pepsi-deild karla eru nú í fríi eftir að tímabilinu lauk í septemberlok. Fyrir stuttu auglýsti hann á Twitter-síðu sinni eftir að komast í smá fótbolta á ný. „Þeir hafa kannski séð það hjá landsliðinu," sagði hann í léttum dúr. „En ég fékk reyndar góð viðbrögð og fór í bolta með félögunum. Pælingin var að reyna halda mér við efnið ef ég skyldi fara út á reynslu - mér datt ekki í hug að landsliðið myndi kalla." „Ég er mjög stoltur af því að vera hingað kominn. Þetta hefur verið draumur minn en ég bjóst samt ekki við að ég myndi fá hann uppfylltan strax." Rúnar stefnir að því að komast að hjá liði í atvinnumannadeild í Evrópu. „Það hjálpar eflaust til ef lið sjá að ég hafi verið valinn í landsliðið á meðan ég er enn að spila heima," sagði hann. Áðurnefnd vígsluathöfn fór fram fyrr í vikunni og sagðist Rúnar hafa afgreitt hana með stæl. „Ég hafði heyrt að menn verði stressaðir fyrir þetta, en ég slátraði því. Ég tók einlæga og góða útgáfu Mýrdalssandinum [með GCD] - mína eigin. Það var lítið mál."
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Körfubolti „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Íslenski boltinn „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Sport Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Íslenski boltinn Fleiri fréttir JJ Gabriel mættur til Barcelona Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli Olise skoraði þrennu í stórsigri Bayern München „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” Hlín hafði betur í Íslendingaslagnum í Svíþjóð Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik Jón Dagur breyst úr floppi í stjörnu „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma Freyr fái fólk til að trúa: „Eitthvað mjög sérstakt að gerast hérna“ Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Veður í Infantino: „Hegðun sem ógnar tilvist leiksins“ Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Peningaflóð til norska sambandsins eftir róður Haalands og félaga FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik „Vitum hvernig fótbolta við viljum spila og hvað við stöndum fyrir“ Markaveislur og stórsigrar í Evrópudeildinni Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Infantino beðinn um að gefa upp gögn um sölu heimsmeistaramótsins Orri grátlega nálægt því að tryggja stig fyrir Real Sociedad Sjá meira