Rúrik: Höfum ekki spilað frábærlega Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. október 2012 13:00 Rúrik á æfingu í gær. Mynd/Stefán
Rúrik Gíslason segir að leikmenn íslenska landsliðsins séu ánægðir með gengi þess en það þeir séu allir hungraðir í meira. „Við viljum komast í toppsætið," sagði hann við Vísi í gær. Ísland mætir Sviss á Laugardalsvelli í kvöld í toppslag E-riðils í undankeppni HM 2014. Liðið er með sex stig og situr í öðru sæti riðilsins, einu stigi á eftir Sviss. Strákarnir unnu 2-1 sigur á Albaníu á föstudagskvöldið í erfiðum leik. Það hellirigndi á meðan leiknum stóð og voru aðstæður sérstaklega slæmar fyrir kantmenn og bakverði. „Maður náði svo sem ekki að sýna neina meistaratakta, sérstaklega í seinni hálfleik. En það var mikilvægt að halda einbeitingu og við reyndum að gera það besta úr aðstæðunum," sagði Rúrik. „Það er svo alltaf gaman að vinna en ég held að okkur hafi tekist að ná okkur aftur niður á jörðina. Við erum að mæta góðu svissnesku liði og við erum tilbúnir í slaginn." Þrátt fyrir gott gengi íslenska liðsins segir Rúrik að það eigi enn heilmikið inni. „Mér finnst við ekki endilega búnir að spila frábærlega. Við eigum fullt inni," sagði hann. „Landsliðið hefur verið í mikilli lægð í langan tíma og tekur tíma að vinna úr því. En þetta hefur verið að koma, hægt og rólega, og úrslitin hafa verið góð í tveimur leikjum af þremur. Úrslitin í leiknum gegn Kýpur voru síðan afar mikil vonbrigði." „Ég tel ásættanlegt að vera með sex stig en við erum allir hungraðir og viljum allir meira. Við viljum komast í toppsætið í riðlinum." Rúrik, sem spilar á hægri kantinum, segir að það geti komið meira úr kantspili íslenska liðsins. „Það er ekki spurning. En það má ekki heldur gleyma því að við höfum spilað tvo erfiða útileiki og bæði miðjumenn og kantmenn hafa þurft að sinna mikilli varnarvinnu. Miðjumönnum er oftar hrósað fyrir þá vinnu en svo vilja menn fá meira úr þeim sem spila úti á köntunum." „En vissulega vonast ég til þess að við fáum meira úr okkar kantspili en hingað til. En það hefur verið lögð rík áhersla á að allir leikmenn leggi sitt af mörkum til varnarleiksins og þannig verður það áfram."
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfubolti Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sport „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Enski boltinn Mark dæmt af Orra á Bernabéu Fótbolti Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“ Sport KR lenti tveimur undir en er enn án taps Íslenski boltinn Hlé á keppni eftir að Jón Erik þeyttist út í vegg Sport Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Enski boltinn Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Enski boltinn Of seinn til að sjást í mynd: „Þetta er bara á allt of lágu plani“ Körfubolti Fleiri fréttir „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Skoraði fyrir bæði lið í stórleiknum Tillaga um Breiðholt á ársþingi KSÍ Mark dæmt af Orra á Bernabéu Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki KR lenti tveimur undir en er enn án taps Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Keflavík og HK á sigurbraut Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Dramatík í Suðurnesjaslag Sandra María mátti sætta sig við tap gegn sínu gamla liði Valgeir náði mikilvægum áfanga eftir krefjandi tíma Jón Dagur skoraði beint úr aukaspyrnu í fyrsta leik sínum með Brann Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Draga sig úr keppni og hvetja félög til að beita sér á ársþingi KSÍ Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Algjör óreiða á vef KSÍ: „Skil pirringinn en þetta mun allt koma“ Sjá meira