Þúsundir sýna Hugo Chavez stuðning 11. janúar 2013 08:00 Í stað innsetningarathafnar var efnt til útisamkomu í Caracas. nordicphotos/AFP
Þúsundir stuðningsmanna Hugos Chavez, forseta Venesúela, komu saman fyrir utan forsetahöllina í Caracas í gær til að sýna stuðning sinn við forsetann. Chavez liggur á sjúkrahúsi á Kúbu, nýlega kominn úr enn einni krabbameinsaðgerðinni, og hefur ekki haft heilsu til að tala opinberlega vikum saman. Hann var of veikur til þess að taka formlega við forsetaembættinu í gær þegar nýtt kjörtímabil hans hófst. Þjóðþing landsins samþykkti að fresta innsetningarathöfninni og hæstiréttur staðfesti að sú frestun bryti ekki í bága við stjórnarskrá landsins. Stjórnarandstæðingar hafa þó ekki fallist á þann úrskurð og segja að forseti þingsins hafi átt að taka við völdum forseta og boða strax til kosninga. Chavez hefur yfirgnæfandi stuðning á þingi og dómarar við hæstarétt eru sagðir honum hliðhollir. Í stað innsetningarathafnar boðaði ríkisstjórnin í gær til útisamkomu fyrir utan forsetahöllina, þar sem fólk gæti komið til að sýna samstöðu með Chavez.- gb
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Sjá meira