Misjöfn viðbrögð við hátekjuskatti Darlings 11. maí 2009 02:00 Háir hátekjuskattar Breski fjármálaráðherrann Alistair Darling með fjárlagafrumvarpið í rauðu töskunni frægu. nordicphotos/AFP
Hátekjuskattar þeir sem boðaðir voru í fjárlagafrumvarpinu sem breski fjármálaráðherrann Alistair Darling kynnti þann 22. apríl síðastliðinn hafa hlotið misjöfn viðbrögð. Samkvæmt frumvarpinu stendur til að hækka tekjuskatt á þá sem þéna meira en 150.000 sterlingspund á ári – sem samsvarar um 28,5 milljónum króna – úr 40 prósentum í 50 prósent. Er hann fylgdi fjárlagafrumvarpinu úr hlaði á þingi sagði Darling að þessi ráðstöfun væri hluti af þeirri stefnu ríkisstjórnar Verkamannaflokksins, að innleiða meiri „sanngirni“ í skattkerfið. Hátekjuskattstillögurnar eru þó öllu flóknari en þetta. Í úttekt vikuritsins The Economist er rakið hve jaðaráhrif breytinganna verða mikil. Þau eru sögð munu hækka úr 31,5 prósentum í 41,5 til 61,5 prósent. Mest verði þessi áhrif á þá sem þéna rétt yfir 100.000 pundum á ári. Þeir missi persónuafsláttinn og við það fari jaðarskattprósentan í þetta hæsta stig. Fyrir þá sem þéna á bilinu 113.000 til 150.000 pund geta farið niður í 41,5 prósent, en við 150.000 punda markið fer jaðarskatturinn í 51,5 prósent. Þá hefur það áhrif líka að skattafsláttur sem veittur er af séreignalífeyrissparnaði minnkar um allt að helming á hátekjufólk. Vegna þess hve flóknar reglurnar eru geta þó sumir hátekjumenn endað uppi með að borga minni skatt af slíkum lífeyrissparnaði. „Þvílíkt klúður,“ skrifar Economist í leiðara um málið. Allt í allt eru þessar auknu skattaálögur á hátekjufólk þó ekki taldar munu skila meiru en um tveimur milljörðum punda í ríkiskassann, og því duga skammt til að laga hinn mikla fjárlagahalla sem fram undan er. Að sögn Financial Times hafði verið búist við minni hækkun hátekjuskatts, en ríkisstjórnin hefði ákveðið að hafa hana svona mikla til að undirstrika muninn á skattastefnu Verkmannaflokksins og Íhaldsflokksins, sem mælst hefur með drjúgt forskot í skoðanakönnunum. Þingkosningar verða að fara fram í Bretlandi í síðasta lagi í júní 2010. Í ljósi þess hve kreppan veldur miklum halla á ríkisfjármálunum er hins vegar talið að íhaldsmenn muni, komist þeir til valda, ekki geta látið nægja að skera bara niður ríkisútgjöld án skattahækkana, eins og þeir vilja helst. Bæði óvinsæll niðurskurður og óvinsælar skattahækkanir verði óumflýjanlegar. audunn@frettabladid.is
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira