Erlent

Vegfarendur skotnir í Noregi

Óli Tynes skrifar

Mikill viðbúnaður er nú á Nesö skammt frá Osló þar sem óþekktur maður skaut á fólk úr haglabyssu. Fregnir af þessu eru mjög óljósar ennþá.

Norskir fjölmiðlar segja ýmist að fólk hafi verið skotið til bana og byssumaðurinn flúið, eða að hann hafi sært einhverja og svo framið sjálfsmorð.

Brú er frá fastalandinu yfir í Nesö og henni hefur nú verið lokað meðan sérsveit lögreglunnar rannsakar málið.

Blaðamannafundru verður haldinn í kvöld vegna málsins.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×