Erlent

Hungurverkfall á Guantanamo

Um 180 afganskir fangar í Guantanamo eru komnir í hungurverkfall til að mótmæla illri meðferð í fangelsinu og knýja á um lausn sína segja tveir fangar sem var sleppt í gær. "180 afganskir fangar borða hvorki né drekka," sagði Habir Russol, sem var fluttur frá Guantanamo á mánudag og sleppt í heimalandi sínu Afganistan í gær. "Sumir fanganna segjast hafa verið beittir harðræði í yfirheyrslum. Sumir segjast saklausir. Þeir mótmæla því að hafa verið í haldi í fjögur ár og vilja fá frelsi á ný," sagði hann. Russol og Moheb Ullah Borekzai, sem var sleppt með honum, segja hungurverkfallið hafa hafist fyrir tveimur vikum. Neil Koslowe, bandarískur verjandi tólf Kúveita sem er haldið í Guantanamo, segir fjölda fanga hafa skýrt sér frá því þegar hann heimsótti Guantanamo fyrir nokkru að fjöldi manna hefði farið í hungurverkfall.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×