Sleppt of snemma af spítala eftir sjálfsvígstilraunir Helga Arnardóttir skrifar 13. febrúar 2010 19:19
Móðir rúmlega tvítugs pilts sem svipti sig lífi fyrir tæpum tveimur árum segir bráðnauðsynlegt að þeir einstaklingar sem geri tilraun til sjálfsvígs verði lagðir inn á spítala í nokkra daga og hljóti viðeigandi meðferð. Syni hennar var sleppt daginn eftir slíka tilraun en endaði svo líf sitt tveimur mánuðum síðar. Tíu prósent þeirra sem þarfnast innlagnar á gjörgæslu eftir sjálfsvígstilraun deyja innan þriggja ára þótt flestir þeirra hafi fengið meðferð í geðheilbrigðiskerfinu samkvæmt nýrri rannsókn sem birt var í læknablaðinu. Þetta segir Ingibjörg Helga Baldursdóttir sláandi en sonur hennar Lárus Stefán Þráinsson stytti sér aldur fyrir tæpum tveimur árum 21 árs vegna þunglyndis. Hún segir að geðheilbrigðiskerfið hefði mátt standa betur að málum Lárusar eftir að hann reyndi fyrst að fyrirfara sér í apríl 2008. „Ég var það hrædd og ég vildi að hann fengi að vera á spítalanum áfram. Ég hafði ekki þá kunnáttu eða þekkingu til að glíma við hann og hans veikindi. Vissi hvorki hvernig ég átti að taka á þessu né bregðast við," segir Ingibjörg. Ingibjörg segist alveg hafa verið undir það búin að þurfa að beita Lárus fortölum um að dvelja áfram á spítalanum. "En ég var hins vegar ekki undir það búin að þurfa sannfæra lækninn um að senda hann ekki heim. Það var nú samt raunin ég mátti bara koma og sækja hann á spítalann daginn eftir sjálfsvígstilraunina. Hann var búinn að lofa því að gera þetta ekki aftur og þá mátti hann bara fara. Það skipti engu máli hvort ég teldi að hann þyrfti að vera þarna áfram." Henni hafi sárnað að heimkoma Lárusar hafi verið byggð á mati eins læknis. Tveimur mánuðum síðar dó Lárus. Ingbjörg segir brýnt að þeir sem reyni að stytta sér aldur fái viðeigandi meðferð og séu lagðir inn á spítala í nokkra daga á eftir eftir slíka tilraun. Fjölskyldurnar og einstaklingurinn sjálfur séu undir nógu miklu álagi.
Mest lesið Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Innlent Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Innlent „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Innlent Anna ljósa fallin frá Innlent Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Innlent Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Erlent Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Innlent Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því Innlent Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Innlent Telja dagana frá síðasta innbroti Innlent Fleiri fréttir „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið „Ég bý ekki einu sinni í Reykjavík“ Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Ekki liðnir níu dagar þegar það var aftur brotist inn Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Dómsuppkvaðning í Gufunesmálinu og óveður í aðsigi Meirihluti íbúa ánægður með flutning stórtónleika á sunnudag Annar fulltrúa Framsóknar hættur í bæjarstjórn Kópavogs Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Ekki búin að ákveða hvort þjóðaröryggisráð verði kallað saman „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Kristrún í pallborði með Starmer, Carney og Albanese Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Hugmyndir kynntar um „miðstöð jaðaríþrótta“ í Toppstöðinni Telja dagana frá síðasta innbroti Rannsaka líkamsárás og fjárkúgun Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því „Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Skvísur séu almennt frekar næringarsnauðar og börnin geti orðið matvönd „Þau eru að herja á börnin okkar“ Skipulagði bæjarferðir að vestan þannig að hann kæmist í Blóðbankann Lægð sem valdi meiri usla Sjá meira