Misstu sjónina í óreyndri stofnfrumumeðferð Kjartan Kjartansson skrifar 26. mars 2017 15:26
Þrjár konur sem fóru í stofnfrumummeðferð sem ekki hefur verið sýnt fram á að virki í Flórída misstu sjónina eftir að frumum var sprautað í augu þeirra. Læknastofan hafði skráð meðferðina sem tilraunameðferð á opinberri vefsíðu. Fjallað er um mál kvennanna í grein í læknaritinu New England Journal of Medicine. Þær eru á áttræðis- og níræðisaldri. Meðferðin var auglýst gegn kölkun í augnbotnum sem er algengasta orsök blindu hjá eldra fólki. Þar kemur jafnframt fram að hundruð læknastofa starfi í Bandaríkjunum sem bjóða upp á stofnfrumumeðferðir sem ekki hefur verið sýnt fram á að virki gegn alls kyns kvillum og sjúkdómum eins og gigt, einhverfu og heilablóðföllum. Stofnfrumurnar sem voru notaðar á konurnar voru fullvaxnar. Talið er að hægt verði að nýta slíkar frumur við meðferðir á fólki í framtíðinni en ekki hefur enn verið sýnt fram á virkni þeirra að því er kemur fram í frétt NPR. Höfundar greinarinnar benda hins vegar einnig á tækifærin sem felast í stofnfrumumeðferðum sem gerðar eru á viðurkenndan hátt. Þannig segir greinin einnig frá meðferð sjúklings við sama kvilla í Japan. Sjóntap hans stöðvaðist eftir að hann fékk meðferð með annars konar stofnfrumum en konurnar í Flórída fengu. Það var í fyrsta skipti sem fjölhæfar stofnfrumur (iPS) voru notaðar til að meðhöndla sjúkdóm í manneskju. Munurinn á meðferðunum tveimur var að sú japanska hafði verið þrautreynd áður.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Fleiri fréttir Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sjá meira