VAR í aðalhlutverki er West Ham skaust í 5. sætið

West Ham fagna sigurmarki Bowen sem skaut þeim í fimmta sætið.
West Ham fagna sigurmarki Bowen sem skaut þeim í fimmta sætið. Frank Augstein/Getty

West Ham er komið upp í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á Aston Villa á Lundúnarleikvanginum í kvöld.

Það voru liðnar einungis tvær mínútur af leiknum er Angelo Ogbonna kom West Ham yfir með skalla eftir hornspyrnu Jarrod Bowen.

Jack Grealish jafnaði metin á 25. mínútu. Skot hans fór af Ogbonna og í netið. Óverjandi fyrir Lukasz Fabianski í markinu hjá West Ham.

Sigurmarkið kom svo í upphafi síðari hálfleiks, nánar tiltekið eftir 28 sekúndur í síðari hálfleik. Eftir fyrirgjöf Said Benrahma skallaði Bowen knöttinn í netið.

Aston Villa fékk gullið tækifæri til þess að jafna metin er stundarfjórðungur var eftir er þeir fengu vítaspyrnu en Ollie Watkins skaut boltanum í slánna.

Öll dramatík var ekki úti því áður nefndur Watkins virtist vera tryggja Villa stig er hann skoraði á 91. mínútu. Eftir skoðun í VAR kom í ljós að hann væri rangstæður þó tæpt væri. Lokatölur 2-1 sigur West Ham.

West Ham er komið upp í fimmta sætið með sautján stig en Aston Villa er í tíunda sætinu með fimmtán stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira