Þægilegt hjá Tottenham í kvöld

Leikmenn Tottenham fagna einu af fjórum mörkum sínum í kvöld.
Leikmenn Tottenham fagna einu af fjórum mörkum sínum í kvöld. EPA-EFE/Clive Rose / POOL

Tottenham Hotspur er kominn með annan fótinn í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir að spila hinn fullkomna leik í kvöld. Liðið lagði Ludogorets 4-0 á heimavelli og hefur þar með unnið þrjá af fjórum leikjum sínum í keppninni.

Ekki nóg með það heldur átti liðið alls 22 skot í leiknum gegn 0 hjá gestunum. Reikna má með að José Mourinho verði glaður á samfélagsmiðlum næstu daga.

Carlos Vinicius skoraði fyrsta mark leiksins á 16. mínútu og bætti svo öðru marki sínu sem og Tottenham við á 34. mínútu leiksins. Það hefur glatt stuðningsfólk Tottenham að sjá Dele Alli leggja síðara markið upp.

Staðan 2-0 í hálfleik og segja má að Tottenham hafi látið kné fylgja kviði í þeim síðari. Harry Winks bætti við þriðja marki liðsins þegar rúmur klukkutími var liðinn og Lucas Moura því fjórða á 73. mínútu. 

Staðan orðin 4-0 og reyndust það lokatölur. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira