Erlent

Andstæðingar þungunarrofs biðu ósigur fyrir hæstarétti

Kjartan Kjartansson skrifar
Andstæðingar þungunarrofs biðu niðurstöðu Hæstaréttar Bandaríkjanna fyrir utan dómshúsið í dag. Þeir urðu fyrir vonbrigðum.
Andstæðingar þungunarrofs biðu niðurstöðu Hæstaréttar Bandaríkjanna fyrir utan dómshúsið í dag. Þeir urðu fyrir vonbrigðum. AP/Patrick Semansky

Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi úr gildi lög sem sett voru í Louisiana og þrengdu verulega að möguleikum kvenna á þungunarrofi í dag. Hefðu lögin fengið að standa hefði aðeins ein heilbrigðisstofnun sem býður upp á þungunarrof verið eftir í ríkinu.

Lögin voru sett árið 2014 og skylduðu lækna sem framkvæma þungunarrof til þess að hafa umboð til að leggja sjúklinga inn á sjúkrahús innan við 48 kílómetra frá læknastofu sinni. Reuters-fréttastofan segir að læknum reynist stundum erfitt að fá slíkt umboð. Þessi skylda hefði kipp fótunum undan tveimur af þremur heilsugæslustöðvum í Lousiana sem bjóða upp á þungunarrof.

John Roberts, forseti hæstaréttarins og einn fimm íhaldssamra dómara við réttinn, tók undir álit frjálslyndu dómaranna fjögurra og dæmdi heilsugæslustöðinni í vil. Ríkisstjórn Donalds Trump studdi Louisiana-ríki í málinu.

Hæstiréttur ógilti áþekk lög í Texas sem gerðu kröfu um að heilsugæslustöðvar sem framkvæmdu þungunarrof hefðu dýran tæknibúnað á við sjúkrahús árið 2016. Lögin voru talin leggja ósanngjarnar byrðar á konur sem sóttust eftir þungunarrofi. Þá vildi Roberts leyfa lögunum að standa. Í málinu í Louisiana sagðist Roberts enn telja að dómurinn frá 2016 væri rangur en að rétturinn yrði að fylgja fordæminu sem var sett með honum.

Nokkur fjöldi ríkja þar sem íhaldssamir kristnir repúblikanar eru við völd í Bandaríkjunum hafa sett sambærileg lög til þess að takmarka verulega aðgengi að þungunarrofi undanfarin ár. Það hafa þeir gert til þess að komast í kringum að hæstiréttur hefur áður dæmt að konur hafi stjórnarskrárvarinn rétt til þungunarrofs.

Dómur hæstaréttar í dag er talinn áfall fyrir andstæðinga þungunarrofs í Bandaríkjunum sem binda vonir við að íhaldssamir dómarar sem nú eru í meirihluta í réttinum legði blessun sína yfir takmarkanir sem þessar. Reuters segir að fleiri mál sem varða þungunarrof bíði úrlausnar réttarins þannig að íhaldsmenn eygja enn möguleika á að takmarka aðgengi að aðgerðinni.


Tengdar fréttir

Íhaldssöm ríki stöðva þungunarrof í faraldrinum

Yfirvöld í Texas og Ohio í Bandaríkjunum hafa ákveðið að þungunarrof sé ónauðsynleg aðgerð sem verði að fresta vegna kórónuveirufaraldursins. Ákvörðunin var tekin þrátt fyrir að samtök bandarískra kvensjúkdómalækna hafi kallað eftir því að þungunarrof nyti verndar í faraldrinum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×