Fótbolti

Sara Björk í viðtali hjá FIFA: Margir hlógu örugglega að því sem ég sagði þegar ég var tvítug

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir bregður á leik í myndatöku Wolfsburg fyrir Meistaradeildina.
Sara Björk Gunnarsdóttir bregður á leik í myndatöku Wolfsburg fyrir Meistaradeildina. Getty/Karl Bridgeman

Fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta er á förum frá Wolfsburg eftir tímabilið eftir mjög sigursæla tíma í Þýskalandi. Markmið hennar er að kveðja með tveimur titlum en Alþjóða knattspyrnusambandið hafði áhuga á að heyra í einni bestu knattspyrnukonu Íslandssögunnar.

Sara Björk Gunnarsdóttir skrifaði ævisögu sína fyrir þrítugsafmælið sitt en taldi sig hafa sögu að segja sem margir gætu tengt við. Sara Björk ræddi við heimasíðu FIFA um ferilinn og framhaldið.

Sara Björk Gunnarsdóttir var kosin íþróttamaður ársins 2018 og eftir það hafði Magnús Helgason samband við hana og lagði það til að hún skrifaði sögu sína í bók.

„Hann sagði mér að núna væri rétti tíminn til að segja mína sögu. Ég er ekki gömul en ég er reynslumikil og hef afrekað mikið á mínum ferli. Ég hef líka gengið í gegnum margt. Mér fannst því líka að ég hefði góða sögu að segja sem margir gætu tengt við, ekki bara leikmenn,“ sagði Sara við heimasíðu FIFA.

Nafnið á bókinni, „Óstöðvandi“, er táknrænt enda hefur hún aldrei látið neinn stöðva sig. Hún meiddist illa snemma á ferlinum en kom enn sterkari til baka.

Vá, ég get verið með há markmið núna

„Ég hef alltaf verið í samkeppni við sjálfan mig. Ég vildi sjá hversu langt ég gæti náð og setti pressu á mig sjálfa. Eftir meiðslin var markmiðið að losna við þau og spila aftur. Eftir að ég komst í yngri landsliðin og svo í A-landsliðið á sama árinu þá hugsaði ég: Vá, ég get verið með há markmið núna,“ sagði Sara Björk.

Sara Björk Gunnarsdóttir hefur spilað 131 A-landsleik fyrir Ísland og alls 148 landsleiki fyrir öll landslið.EPA/SALVATORE DI NOLFI

„Þegar ég var bara tvítug þá sagði ég fjölmiðlunum að ég ætlaði mér að verða besti miðjumaður í heimi. Fullt af fólki hefur örugglega hlegið að mér. Ég hef alltaf haft trú á sjálfri mér og hugarfarið mitt hefur komið mér þangað sem ég er í dag,“ sagði Sara.

Sjö sinnum meistari í Svíþjóð og Þýskalandi

Hún fór út í atvinnumennsku árið 2011 og gekk til liðs við sænska liðið Rosengård. Sara hefur síðan unnið sænska meistaratitilinn fjórum sinnum, sænska bikarinn einu sinni og eftir að hún færði sig yfir til Wolfsburg í Þýskalandi þá hefur Sara unnið tvennuna þrisvar sinnum. Á níu tímabilum í atvinnumennsku hefur Sara þannig unnið sjö meistaratitla með liðum sínum.

„Það er gott og léttir að geta byrjað að spila aftur. Þetta verður mjög mikið álag þangað til í lok júní en við höfum æft mikið. Við höfum byrjað að æfa aftur saman sem lið og allar eru í toppformi," sagði Sara um lok tímabilsins með Wolfsburg.

Leið eins og litlum krakka á fyrstu æfingunni

„Þessi tími hefur sýnt mér hversu mikið ég hef saknað að vera með liðsfélögunum í klefanum og hversu mikið ég hef saknað fótboltans. Mér leið eins og litlum krakka á fyrstu æfingunni okkar saman. Ég er þakklát að við getum byrjað að spila aftur," sagði Sara.

Sara Björk Gunnarsdóttir fagnar hér titli með Wolfsburg liðinu ásamt þeim Lenu Goessling, Caroline Graham Hansen og Pernille Harder.EPA-EFE/SASCHA STEINBACH

„Auðvitað vilja ég enda árið hjá Wolfsburg með titlum og spila eitthvað af leikjum. Það voru spennandi hlutir í gangi hjá okkur á þremur vígstöðvum, í deildinni, í bikarnum og í Meistaradeildinni. Nú hafa hlutirnir breyst aðeins. Vonandi getum við endað á að vinna deildina og bikarinn. Markmiðið er að enda feril minn hjá Wolfsburg með tveimur titlum. Það yrði æðislegt," sagði Sara Björk að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×