Newcastle hársbreidd frá ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að leika ekki Kristinn Páll Teitsson skrifar 22. apríl 2017 16:10 Aron Einar í leik með Cardiff í vetur vísir/getty
Newcastle þarf aðeins stig úr síðustu þremur leikjum liðsins í ensku Championship-deildinni til að gulltryggja sæti sitt í deild þeirra bestu á nýjan leik eftir eins ára fjarveru en þetta varð ljóst eftir leiki dagsins í Championship-deildinni. Í raun þarf algjört kraftaverk til þess að Reading sem tapaði óvænt gegn Nottingham í dag geti náð Newcastle en lærisveinar Rafa Benitez eiga 36 mörk á Reading þegar Reading á aðeins tvo leiki eftir. Nottingham sem berst fyrir lífi sínu í deildinni gerði sér lítið fyrir og vann Reading á heimavelli 3-2 en heimamenn komust 3-0 yfir í upphafi seinni hálfleiks. Reading náði að minnka muninn í tvígang en náði ekki að bæta við jöfnunarmarki. Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn á miðju Cardiff sem gerði markalaust jafntefli við Wigan en Cardiff er um miðja deild með 59 stig að 44 leikjum loknum þegar tveir leikir eru eftir. Jafnteflið þýðir hinsvegar að örlög Wigan eru nánast ráðin en liðið þarf á kraftaverki að halda til að bjarga sæti sínu í deildinni. Jón Daði Böðvarsson kom inn af bekknum en náði ekki að komast á blað í markalausu jafntefli gegn Blackburn á heimavelli en Úlfarnir sigla sama sjó og Cardiff um miðja deild. Varnarmennirnir Ragnar Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon komu ekkert við sögu í sigurleikjum liða sinna í dag en Fulham vann 4-1 sigur á Huddersfield á útivelli og náði með því þriggja stiga forskoti á Leeds um baráttuna um síðasta umspilssætið. Bristol City vann 3-2 sigur á heimavelli og er komið í 17. sæti deildarinnar eftir að hafa fengið 10 stig af síðustu tólf mögulegum en Hörður hefur lítið komið við sögu undanfarnar vikur.
Enski boltinn Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Fleiri fréttir Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar Sjá meira